Húsið hans afa í Miðtúni á Selfossi varð mér guðdómlegt skjól þegar veröldin mín hrundi á unglingsárum, draumar brustu og vonir dvínuðu. Þá var móðurafi minn mér ljós Guðs, náð og blessun. Húsið, þar sem eilífðin er í andartaki dauðlegs manns, sem fer með bæn til Frelsarans, minnir mig á himinsins her og hallir Guðs,… Halda áfram að lesa Húsið hans afa í Miðtúni, Þorkels Bergssonar
Author: Guðmundur Guðmundsson
Hver er ég?
Hver er ég? Efnahvörf og rafboð, örsmá vera í alheimi um litla stund, þó hugsandi efni sem veit af sér á meðan er. Mikið undur er það að sjá sólina rísa og lýsa, tunglið um nætur ganga sína leið, stjörnuhiminn óravíddir birta, og hug minn greina, að ég er hluti af þessu öllu, undrast að… Halda áfram að lesa Hver er ég?
Persónur píslarsögunnar 2. þáttur: María móðir Drottins og íhugun orðsins
Nú má hlusta á annan þátt um Persónur píslarsögunnar: María móðir Drottins og íhugun orðsins. Það eru hjónin Fjalar Freyr Einarsson sem kynnir og Dögg Harðardóttir sem flytur vitnisburð Maríu. Íhugunin hefst með sálminum mínum Komu úr austri konungar þrír við lag John H. Hopkins. Það eru mæðgurnar Íris Andrésdóttir og Ragnhildur Ásgeirsdóttir sem syngja þennan jólasálm við… Halda áfram að lesa Persónur píslarsögunnar 2. þáttur: María móðir Drottins og íhugun orðsins
Þegar hugsun mín slokknar
Hvað verð ég þegar hugsun mín slokknar? Þegar ég hætti að vita af mér, þegar líkami minn sundrast hætti ég þá að vera ég? Dauði. Endalok. Þó veit ég að lífið heldur áfram, tilveran er sem betur fer ekki háð minni vitund. Hún er stærri en svo.Þó að vitund mín slokkni þá ert þú eilíf vitund… Halda áfram að lesa Þegar hugsun mín slokknar
Guð og merking
Þetta er boðskapurinn sem við höfum heyrt af honum og boðum ykkur: „Guð er ljós og myrkur er alls ekki í honum“. Ef við segjum: „Við höfum samfélag við hann,“ og göngum þó í myrkrinu, þá ljúgum við og iðkum ekki sannleikann. En ef við göngum í ljósinu, eins og hann sjálfur er í ljósinu,… Halda áfram að lesa Guð og merking
Persónur píslarsögunnar. 1. þáttur: Pétur postuli, fljótfær og mistækur maður
Í tilefni af 200 ára afmælis Hins íslenska biblíufélags 2017 samdi ég fjóra einþáttunga og samtöl. Ég nefndi þættina fjóra Persónur píslarsögunnar. Sama ár á páskadag lagði ég drög að fimmta þættinum um vitnisburð upprisunnar. Nú hef ég gengið frá þeim þætti og verða þeir allir fluttir á Lindinni nú á föstunni og páskum (2022).… Halda áfram að lesa Persónur píslarsögunnar. 1. þáttur: Pétur postuli, fljótfær og mistækur maður
Ég hlusta – Biblíuljóð
Ég hlusta – hann er sá sem talar. Ég er upplýstur – hann er ljósið. Ég er eyrað – hann er orðið. (Ágústínus kirkjufaðir, hjá E. Brown, I. bini. bls. 156.) Ég rakst á þessi tilvitnun í Ágústínus kirkjuföður nú fyrir Biblíudaginn sl. sunnudag í ritskýringu E. Brown á guðspjalli Jóhannesar. Grípandi orð sem ég… Halda áfram að lesa Ég hlusta – Biblíuljóð
Jesús og samverska konan við Jakobsbrunn – Ræða á Hólum
Ný þáttaröð mín á útvarpsstöðinni Lindinni hófst í febrúar. Þættirnir eru flutti á miðvikudögum kl. 9 og sunnudögum kl. 10. Þetta er fjórði þátturinn sem endaði að hluta sem ræða á Svalbarði og Grenivík sunnudaginn 13. febrúar. Ég fékk að láni heiti á erindaröðini titil á bók eftir Øivind Andersen I sjelesorg Hos Jesus eða… Halda áfram að lesa Jesús og samverska konan við Jakobsbrunn – Ræða á Hólum
Fegurð íslensku jólasálmanna
Á aðventunni hefur ég verið með umfjöllun um aðventu- og jólasálma og siði frá ýmsum löndum. Þættirnir voru upphaflega á útvarpsstöðinni Lindinni á aðventu og um jól 2020. Fyrsti þátturinn er um þá jólasálma sem mér finnst fallegastir hjá okkur Íslendingum og velti fegurðinni í þeim fyrir mér. Sálmurinn Sjá himins opnast hlið eftir Björn… Halda áfram að lesa Fegurð íslensku jólasálmanna
Aðventu og jólasálmar frá Þýskalandi
Í 2. þætti um um aðventu og jól er fjallað um aðventu og jólasálma frá Þýskalandi. Hvaðan kemur aðventukransinn? Ég veltir fyrir mér góðum helgisiðum og heimilisguðrækni um aðventu og jól. Sálmarnir sem hann skoðaðir eru: Við kveikjum einu kertiá í þýðingu Lilju Kirstjánsdóttur. Hér leggur skip að landi eftir Sigurbjörn Einarsson með hliðsjón af… Halda áfram að lesa Aðventu og jólasálmar frá Þýskalandi