Samkirkjulegur sálmur sem ég samdi fyrir nokkrum árum og var að klára. Þjóðkirkjan hefur lítið sinnt samkirkjulegum starfi í gegnum árin þó hefur hún verið aðila að samkirkjulegri bænaviku en af einhverjum ástæðum með lítilli þátttöku fólks og presta úr þjóðkirkjunni. Þó er augljóst af guðspjalli Jóhannesar að eining í fjölbreytileika er hjartans mál Guðs eins og þessi sálmur túlkar.
Kærleiki Krists knýr oss
Lag: Wenn ich, o Schöpfer, deine Macht
Þú Faðir berð í brjósti harm,
þér brennur ást í sinni
að leita týndra, berð við barm
þín börn í veröldinni.
Þú alla syndum frelsar frá.
Vér fögnum því að ljós það sjá,
því kærleiki Krists knýr oss.
Í niðamyrkri mættir oss,
í mannheim komst og þjáðist.
Guðs miskunn ertu, Kristur, kross
þinn kallar, friður náðist.
„Kom þú til mín“, svo kallar þú,
sem krýndur sigri gefur trú,
því kærleiki þinn knýr oss.
Samstöðu vek með þeim sem þjást
þar þig vorn Drottinn sjáum
Vér þjónum þér, sem aldrei brást,
í þér svo reynast fáum.
Vér fylgjum þér, ó, Kristur kær,
svo komi himnaríki nær,
því kærleiki þinn knýr oss.
Þú Drottinn, lækna dapra tíð,
þér dýrð söng fölskum hljómi.
Sameina aftur lífsins lýð,
þig lofi einum rómi,
að vitnum vér um þína náð
og veröld fái gjöf þá þráð,
því kærleiki Krists knýr oss.