TEXTAR: Lexía: Slm 86.9-13, 15 Pistill: Post 9.1-20 Guðspjall: Mrk 8.22-27 „Þegar Kristur kallar mann til fylgdar við sig kallar hann mann til að deyja“ D. Bonhoeffer Það er ótrúlega mikið af ofbeldi í veröldinni. Ekki þarf mikinn lestur í blöðum eða hlustun á fréttir að sú alvarlega staðreynd renni upp fyrir manni. Stundum eru þær… Halda áfram að lesa Ofbeldi eða frelsi – Ræða í Akureyrarkirkju 12. sd. eftir trin., 22. ágúst 2021
Author: Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi
Gleði og dans. Ræða um verslunarmannahelgi 1. ágúst 2021
TEXTAR: Sálmur 100Fil. 4.4-7Lk. 10.21-22 „Joy is the serious business of heaven“ „Gleði er alvörumál himinsins“ C. S. Lewis Landinn átti von á því að geta skemmt sér konunglega um Verslunarmannahelgina. En vegna Covid-19 til 21 er líklega óhætt að kalla það verða engar stórhátíðir þetta árið frekar en í fyrra. Margir sitja því heima… Halda áfram að lesa Gleði og dans. Ræða um verslunarmannahelgi 1. ágúst 2021
Gleði og dans
Þessi var unnin með myndinni Hjá ömmu og er af sömu stærð 30×40 máluð á striga með olíumálningu. Berglind Björk dansar hér glöð með hatt. Lauk við myndina haustið 2020.
Hjá ömmu
Þessi mynd er 30X40 máluð á striga með olíumálningu. Amma Bodda heldur þar á Helgu Maríu. Eins og aðrar myndir mínar hefur hún lengi verið í vinnslu en ég lauk henni svo síðastliðið haust, 2020.
Fimm fossa gangan upp með Jökulsá á Fljótsdal
Eitt af stóru áhugamálum mínum er að ferðast. Fátt jafnast á við gönguferðir úti í náttúrunni. Þessi ferð upp með Jökulsá á Fljótsdal að fimm fossum var óviðjafnanleg. Þá fékk ég þessa ágætu hugmynd að teikna þá og mála. Það var verkefni mitt í sumarfríinu. Búinn að teikna en rétt byrjaður að mála. Hér eru… Halda áfram að lesa Fimm fossa gangan upp með Jökulsá á Fljótsdal
Heilög kvöldkyrrð
Heilög kvöldkyrrð vonir vekur, værð og friður ríkir brátt. Stjörnuhiminn hugann tekur, hrífur geislaflóð dimmblátt. Blærinn skrjáfar, skógarkliður, söngur fugla þagnar nú. Lágvær heyrist lækjarniður líkt og vögguvísa undur bljúg. Verkamaður vinnulúinn vill nú heim að hvíla sig, heima bíða börn og frúin, brosa mót’ honum ástúðleg. Sjómaðurinn öldufaldi undan sleppur’ á hinstu stund. Gleðst… Halda áfram að lesa Heilög kvöldkyrrð
Kemur ljós kærleikans – Hvítasunnusálmur
Kemur ljós kærleikans er hvítasunnusálmur lauslega þýddur úr ensku. Hann er brennandi bæn um að huggarinn, andi kærleikans, eldur andans brenni burt úr hjartanu vonda löngun og kveiki í stað djúpa þrá eftir að líkjast Kristi. Það er lífið sem Guð gefur af náð sinni og við eigum kost á. Lagið er eftir Ralph Vaughan… Halda áfram að lesa Kemur ljós kærleikans – Hvítasunnusálmur
Betri tíð – eilíft sumar
Ræða flutt á sunnudegi milli uppstigningardags og hvítasunnu í Akureyrarkirkju 16. maí 2021. Upphafssálmur var: „Dýrlegt kemur sumar“. Og einsöngur Draumalandið eftir Sigfús Einarsson. Það var kveikjan ásamt guðspjalli eftir textaröð A.
Hádegissól í Hornvík
Þá er það seinni myndin frá Hornvík í hádegissólinni sem andsvar við miðnætursólina í Hvannadal. Þessar tvær myndir voru málaðar með þremur grunnlitunum og hvítum eftir litaaðferð van Goch sem mér fannst áhugverð þegar ég skoðaði listasafn hans í Amsterdam um árið.
Sumardagurinn fyrsti
Sumardagurinn fyrsti, fönninn gefur sig, hér brýst úr ísaböndum áin, vorsól yljar mönnum, magnar fuglasöng, nú ljósið skín og lífsins þráin. Geng ég gegnum skóginn, geislar lífga brum, og moldin ilmar, vil ég vinna þarfaverk af krafti, kallar jörð á mig, ég glaður vil því verki sinna. Lítil skógarplanta, leyndist undir snjó, og birkikvistinn braut… Halda áfram að lesa Sumardagurinn fyrsti