Góði Guð, ástin er undursamleg gjöf þín. Þegar illa liggur á mér, skil ég ekki að nokkur skuli elska mig. Þegar ég er einmana, geri ég allt til þess að verða sem elskulegastur. Æ, hvað ég þrái að vera elskaður! Hvort er auðveldara, að vera elskaður eða að elska?
Author: Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi
Um frelsi kristins manns
Eftirfarandi örerindi var flutt í Kirkjubæ, sem var kirkjumiðstöð á Akureyri um nokkurra ára skeið. (Mynd frá húsblessun þar). Á föstudögum í hádeginu voru haldin „sálarstaldur“ þar sem flutt voru stutt erindi og umræður í frammhaldi af þeim yfir hádegishressingu. Þetta erindi var flutt á siðbótardegi 31. október 2006 um bók Lúthers Um frelsi kristins… Halda áfram að lesa Um frelsi kristins manns
Á meðal blindra
Ljóðið Á meðal blindra eru mínar vangaveltur um tilgang lífsins, sem leituðu á huga minn á ákveðnu tímabili í lífi mínu, tilvistarspurningarnar. Það kom sterkt upp í huga minn eftir að hafa verið með heimspekingum allan daginn með spurningarnar stóru undir.
Í réttum takti
Nútíminn er á fleygi ferð finnst manni stundum. Takturinn eins hraður og hugsast getur. Mesta hjáguð nútímans berum við um hendina, klukkan, er orðin guð okkar sem öllu ræður. Við ættum að læra af Afríku að tíminn kemur til okkar eða eins og í þessu ljóði Í réttum takti.
Tal við Guð um traust
Ég trúi á þig, Guð minn, á því byggir líf mitt, að treysta því að þú segir sannleikann. En hver er ég að láta mér detta það í hug að það sem ég segi eða geri hafi áhrif á það hvort þú sért sá sem þú segist vera eða að þú hverfur mér út í… Halda áfram að lesa Tal við Guð um traust
Tal við Guð um þverstæður lífsins
Fjörutíu og þrjú ár (nú hálf öld) eru síðan ég var skírður í nafni heilagrar þrenningar, rétt áður en ég var fermdur tveimur dögum seinna. Gleðidagarnir eftir páska eru runnir upp. Kristin trú er ögrandi. Að ögra þeirri tilveru, sem manni er varpað inn í, af þér Guð, þrátt fyrir allt og allt, játast… Halda áfram að lesa Tal við Guð um þverstæður lífsins
Páskaprédikun – grátur og hlátur lífsins
Ræðan var flutt í Akureyrarkirkju á páskadag 12. apríl 2009. Lagt var út af textanum í Jóhannesarguðspjalli 20. kafla um Maríu Magdalenu úti fyrir gröf Jesú. Fluttur var sálmurinn Árdegis, röðull reis úr nótt í upphafi. Í ræðunni var fjallað um viðkvæmar trúarlegar tilfinnar þegar það er eins og Guð hylji sig.
Páskasálmur – tár Maríu í páskasólinni
Páskasálmurinn er saman út frá frásögninni um Maríu úti fyrir gröfinni á páskadagsmorgni í Jóhannesarguðspjalli 20. kafla. Þetta er ein tilfinningaríkasta frásögn guðspjallsins, um leið og hún er átakanlega sorgleg, hefur hún að geyma glettni sjónarvottsins, sem vafalítið hefur skemmt sér við að segja frá þessu atviki í söfnuðinum. Hún þekkti ekki Meistara sinn, hélt… Halda áfram að lesa Páskasálmur – tár Maríu í páskasólinni
Hugleiðing um bæn
Vegur bænarinnar reynist mörgum þröngur og erfiður yfirferðar. Meistari bænarinnar er Drottinn sjálfur sem hefur gefið börnum sínum loforð og fyrirheit í orði sínu. Þau snúa mörg hver að bæninni eins og orðin í Rómverjabréfinu um að andinn biður með okkur með andvörpum sem verður ekki orðum að komið (Róm. 8). Svo að við megum… Halda áfram að lesa Hugleiðing um bæn
Daggardropinn
Sálmurinn eða andlega vísan er hugleiðing um daggardropa sem fellur á að morgni og lífið endurspeglað í þeirri mögnuðu mynd en óverulegu. Lífið með Guði er undrun og þakklæti sem ég tjáði með þessum vísuorðum. Fyrirmynd textans er eftir Oddmund Haugen við lag Gunstein Draugedal. Laufey G. Geirlaugsdóttir syngur lagið í geisladiskinum Lofsöngur til þín, sem kom… Halda áfram að lesa Daggardropinn