Fegurð jólasálmanna

Inngangur:  Það kemur fyrir þegar við prestarnir erum fengnir til að tala á jólafundum að það er nefnt við okkur að segja eitthvað fallegt um jólin. Mér datt í huga að taka þeirri áskorun að segja eitthvað fallegt. Fegurð er eðlilega smekksatriði svo að hér tala ég frá mínum bæjardyrum séð.

Orð Guðs – Við fætur Drottins

“Við fætur Drottins” er staða kirkjunnar gagnvart Meistara sínum og Drottni. Málverk Johannes Vermeer Kristur í húsi Mörtu og Maríu finnst mér hrífandi og talandi og skemmtilega hollenskt. Á ferðalagi í Edenborg staldraði ég lengi við þessa mynd á Listasafni Skotlands (National Gallery of Scotland) þar sem myndin er og virti hana lengi fyrir mér.… Halda áfram að lesa Orð Guðs – Við fætur Drottins

Bæn samfélagsins til heilagrar þrenningar

Sálmurinn á fyrirmynd í þemasálmur alþjóðlegu samkirkjulegu bænavikuna 2012. Efnið var undirbúið í Póllandi það árið.  Textinn sem þema vikunnar byggði á var úr bréfi Páls postula til Korintumanna (1. Kor. 15. 51-58): „Við munum umbreytast fyrir sigur Drottins vors Jesú Krists.“ Sálmurinn er þrenningarsálmur og á vel við á þrenningarhátíð eða hvítasunnu. Lagið er… Halda áfram að lesa Bæn samfélagsins til heilagrar þrenningar

Páskasálmur – tár Maríu í páskasólinni

Páskasálmurinn er saman út frá frásögninni um Maríu úti fyrir gröfinni á páskadagsmorgni í Jóhannesarguðspjalli 20. kafla. Þetta er ein tilfinningaríkasta frásögn guðspjallsins, um leið og hún er átakanlega sorgleg, hefur hún að geyma glettni sjónarvottsins, sem vafalítið hefur skemmt sér við að segja frá þessu atviki í söfnuðinum. Hún þekkti ekki Meistara sinn, hélt… Halda áfram að lesa Páskasálmur – tár Maríu í páskasólinni

Föstudagurinn langi – undir krossinum

Föstudagurinn langi, þverstæður lífsins, ljós og myrkur mætast, líf og dauði, eins og í þessari mynd eftir Maurice Denis frá ca. 1895, Fórnin á Golgata. Trúuð sál tekur sér stöðu með Maríu, móður Jesú, undir krossinum, íhugar og biður. Hér birtist mín þýðing á Stabat mater dolorosa, mín íhugun um þjáningu lífsins og trúna, guðfræði… Halda áfram að lesa Föstudagurinn langi – undir krossinum