Þessi sálmur hefur fylgt mér í nær fjörutíu ár. Nú er ég að ljúka þýðingu á honum og verður hann sunginn við guðsþjónustu á Ólafsfirði næst komandi sunnudag 2. október 2016. Það er 19. sunnudagur eftir þrenningarhátíð, prédikunartextinn er um lama manninn sem borinn var til Jesú. Jesús sagði við hann: „Barnið mitt syndir þínar… Halda áfram að lesa Vísa mér, Guð, á vegu þína
Um höfund
Dramb er falli næst
Ræða flutt í Akureyrarkirkju 18. september 2016 sem var 17. sd. eftir þrenningarhátíð. Guðspjallið var Lk. 14. 1-11 um dæmi Jesú í húsi farísea nokkurs. Sungnir voru sálmar úr Sálmum 2013. Í guðspjallinu ræðir Jesú um hefðarsætin og þá leið sem hann valdi sér sjálfur með að þjóna í heiminum.
Guð einn sem skapar lífið og elskar
Ræða flutt í Glerárkirkju 4. september í kvöldmessu. Guðspjallað úr Fjallræðunni um að horfa á fuglana og liljur vallarins í Mt. 6, 24-34. Jesús áminnir þar um að vera ekki áhyggjufull en um leið er þetta ögrandi ræða um að treysta á Guð. Jesús segir þar: „Enginn getur þjónað tveimur herrum“.
Að gera eða vera
Ræða flutt í Akureyrarkirkju 7. ágúst 2016 að kvöldi dags. Sungnir kvöldsálmarnir Nú hverfur sól í haf (Sb. 592) og Ó, vef mig vængjum þínum (Sb. 594). Textinn var um Faríseann og tollheimtumanninn sem fóru upp í helgidóminn að biðja í Lk. 18. 9-14. Við erum svo upptekin við að gera allt mögulegt að trúin… Halda áfram að lesa Að gera eða vera
Ræða á sjómanndegi – Sögurnar um lífsháskann
Ræða flutt á sjómannadegi, upphaflega á Húsavík 7. júní 2015 og aðlöguð ári síðar á 5. júní 2016 og flutt í Glerárkirkju. Textinn úr guðspjalli Matteusar Mt 8.23-27. Þá voru fluttir tveir nýlegir sálmar annar eftir Hjört Pálsson sb. 831: Þeir lögðu frá sér fisk og net. Kannski dálítið ögrandi á sjómannadegi. Og hinn sálmurinn, lag… Halda áfram að lesa Ræða á sjómanndegi – Sögurnar um lífsháskann
Óttalegur Lasarus
Ræða flutt við messa í Lögmannshlíðarkirkju 29. maí 2016. Það var 1. sd. eftir þrenningarhátíð og guðspjalltextinn ein af dæmisögunum í guðspjalli Lúkasar um Lasarus, beiningarmaðurinn við dyr ríka mannsins (Lk 16.19-31).
Ljóð um krossinn
Hugleiðing um krossinn eftir lestur á ritum Lúthers Um frelsi kristins manns og Ánauð viljans. Frelsið er innra frelsi en hefur víddir inn í samfélag raunveruleikans í tilbeiðslunni þegar við lifum Guð, treystum á hann. Trúin er ekki að gera heldur að vera.
Kristur er farinn!
Ræða flutt á Uppstigningardegi í Glerárkirkju 5. maí 2016. Texti dagsins var guðspjall dagsins úr Lúkasarguðspjalli 24.44-53. Það var góð upplifun að hlusta á Karlakór Akureyrar – Geysir syngja sálma dagsins og flytja svo nokkur lög með krafti og hrífandi fegurð.
Jakobsglíman – lífsglíma okkar tíma
Ræða við messu í Glerárkirkju 21. febrúar 2016 sem var 2. sunnudagur í föstu. Guðspjallatextinn var Mt. 15.21-28 um Kanversku konuna en ég dvaldi aðallega við Lexíuna úr Gt. 1Mós 32.24-30. Sá texti fer hér á eftir:
Sálmar og bænalíf – Fyrri hluti: Tilfinningar bænalífsins
Hér má skoða erindi mitt á YouTube sem flutta var í Glerárkirkju 3. febrúar 2016 á fræðslu- og umræðukvöldi. Í febrúar er viðfangsefnið íhugun, bæn og fasta. Ég byrjaði með umfjöllun um Sálma og bænalíf. Tilfinningar og stef Davíðssálma og sálma kirkjunnar. Hugmyndin var með þessari fyrirlestraröð að draga fram andlega iðkun í kristnum anda… Halda áfram að lesa Sálmar og bænalíf – Fyrri hluti: Tilfinningar bænalífsins