Upphaflega flutti ég þessa jólaræða í Glerárkirkju á jóladag 1999 og svo 2010 í Munkaþverárkirkju og 2016 í Ólafsfjarðarkirkju og líklega í síðasta sinn í Laufási 2023. Ég las ljóðið í ræðunni vers fyrir vers eins og R. E. Brown setur það upp og reyndi fyrir mér að útskýra textann í heild með einhvers konar… Halda áfram að lesa Fyrsti jólasálmurinn
Author: Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi
Neyðin hefur andlit
Næstkomandi sunnudag, 1. sunnudag í aðventu hefst jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar. Neyðin hefur andlit er hugleiðing um hjálpar- og líknarstarf kirkjunnar, þá stöðu sem trúaður maður tekur gagnvart meðbróður og -systur. Gjafarinn er Guð einn. Okkur sem meira er gefið en öðrum höfum hlotið meiri ábyrgð að gefa með okkur, því ekkert af því er okkar,… Halda áfram að lesa Neyðin hefur andlit
Hinsta stund og kærleikurinn
Ræða flutt í Glerárkirkju á síðasta degi kirkjuársins 2016 þann 20. nóvember. Texti dagsins var Mt.25.31-46, Dæmisagan um Mannsoninn og dóminn á efsta degi. Jesús fer fram á að við gerum miskunnarverkið, kærleikurinn er ekki orðin tóm heldur samstaða með þeim smæstu. Kærleikurinn er að taka sér stöðu með þeim, vera í þeirra hópi, eins og… Halda áfram að lesa Hinsta stund og kærleikurinn
Frelsi, siðbót eða bylting
Ræða flutt á siðbótardaginn í Glerárkirkju 30. september 2016. Það var daginn eftir kosningar. Textar dagsins voru: Jer 31.31-34; Róm 3.21-28; Jóh 8.31-36. Þema ræðunnar voru orð Jesú í guðspjallinu: „Sannleikurinn mun gera ykkur frjáls“. Og: „Ef sonurinn frelsar ykkur munið þið sannarlega vera frjáls“. Það voru sungnir sálmar eftir Lúther: Upphafssálmur sb. 335: Guð helgur andi; Lofgjörðarvers… Halda áfram að lesa Frelsi, siðbót eða bylting
Himnesk veisla á jörð
Ræðan Himnesk veisla á jörð var flutt á 20. sunnudag eftir þrenningarhátíð. Hún hefur verið margnýtt og endurskoðuð. Ræðan endurspeglar Kaupmannahafnarár okkar hjóna 1995 þar sem ég var við framhaldanám við guðfræðideildina og sjálfstæðar rannsóknir. Eftir að ég kom heim hlustaði ég á erindi dr. Gunnars Kristjánssonar um Jón Vídalín og postillu hans. Ég reyndi ræðulist… Halda áfram að lesa Himnesk veisla á jörð
Jesús ruglukollur eða Guðs sonur að fyrirgefa syndir
Ræða flutt í Ólafsfjarðarkirkju 19. sunnudag eftir þrenningarhátíð 2. október 2016. Kirkjukórinn söng í guðsþjónustunni sálminn minn Vísa mér, Guð, á vegu þína, sem ég birti hér á vefnum fyrir nokkrum dögum. Guðspjallið var úr Matteusarguðspjalli 9: 1-8 um lama manninn sem borinn var til Jesú. En Jesús fyrirgaf honum syndirnar og sagði: „Vertu hughraustur,… Halda áfram að lesa Jesús ruglukollur eða Guðs sonur að fyrirgefa syndir
Vísa mér, Guð, á vegu þína
Þessi sálmur hefur fylgt mér í nær fjörutíu ár. Nú er ég að ljúka þýðingu á honum og verður hann sunginn við guðsþjónustu á Ólafsfirði næst komandi sunnudag 2. október 2016. Það er 19. sunnudagur eftir þrenningarhátíð, prédikunartextinn er um lama manninn sem borinn var til Jesú. Jesús sagði við hann: „Barnið mitt syndir þínar… Halda áfram að lesa Vísa mér, Guð, á vegu þína
Dramb er falli næst
Ræða flutt í Akureyrarkirkju 18. september 2016 sem var 17. sd. eftir þrenningarhátíð. Guðspjallið var Lk. 14. 1-11 um dæmi Jesú í húsi farísea nokkurs. Sungnir voru sálmar úr Sálmum 2013. Í guðspjallinu ræðir Jesú um hefðarsætin og þá leið sem hann valdi sér sjálfur með að þjóna í heiminum.
Guð einn sem skapar lífið og elskar
Ræða flutt í Glerárkirkju 4. september í kvöldmessu. Guðspjallað úr Fjallræðunni um að horfa á fuglana og liljur vallarins í Mt. 6, 24-34. Jesús áminnir þar um að vera ekki áhyggjufull en um leið er þetta ögrandi ræða um að treysta á Guð. Jesús segir þar: „Enginn getur þjónað tveimur herrum“.
Að gera eða vera
Ræða flutt í Akureyrarkirkju 7. ágúst 2016 að kvöldi dags. Sungnir kvöldsálmarnir Nú hverfur sól í haf (Sb. 592) og Ó, vef mig vængjum þínum (Sb. 594). Textinn var um Faríseann og tollheimtumanninn sem fóru upp í helgidóminn að biðja í Lk. 18. 9-14. Við erum svo upptekin við að gera allt mögulegt að trúin… Halda áfram að lesa Að gera eða vera