Hvít-Krossfesting eftir Chagall varð mér innblástur að þessu málverki. Má segja að það sé uppfærsla því, krossinn er erindi Guðs til mannskyns að Guð tekur stöðu með þeim þjáðu og kúguðu, alltaf, svo sá sem beitir ofbeldi ræðst gegn Guði. Chagall var með í huga gyðingaofsóknir í Rússlandi á fyrri hluta 20. aldar. Ég uppfærði… Halda áfram að lesa Föstuprédikun mín í ár í anda Chagall
Author: Guðmundur Guðmundsson
Myndlistamaður
Lys-serían nr. 3: Gítarleikarinn
Þá er það næsta mynd nr. 3 úr Lyst-seríunni. Gítarleikarinn. Læt ég liggja milli hluta hvaða listafólk var málað. Þeir sem vilja mega geta upp á hver þetta er. Ég naut þess að vera á kaffihúsinu með mínu fólki og hlusta á gítarleikarana spila. Gítarleikarinn, gjörið þið svo vel.
Lyst-serían nr. 2: Uppistandarinn
Þá er það næsta mynd nr. 2 úr Lyst-seríunni. Uppistandarinn. Læt ég liggja milli hluta hvaða listafólk var málað. Þeir sem vilja mega geta upp á hver þetta er. Ég hló mikið og hafði gaman af, sérstaklega þar sem ég hef lagt stund á sagnfræði eins og skotspónn hennar, kærastinn, forn í máli og lund,… Halda áfram að lesa Lyst-serían nr. 2: Uppistandarinn
Lyst-serían
Í vetur hef ég stundað nám við Myndlistaskólann á Akureyri. Verkefni í janúar var m. a. að skipuleggja sig og þjálfa í sjálfstæðum vinnubrögðum. Ég ákvað að klára þriggja mynda seríu sem ég fékk hugmynd að á skemmtikvöldum á Kaffi Lyst í Lystigarðinum í desember sl. Helga María dóttir mín stakk upp á nafninu „Lyst-serían“,… Halda áfram að lesa Lyst-serían
Lofsyngjum Lausnarann
Í efni samkirkjulegrar bænavikunnar 2023 var sálmurinn „Lift every voice and sing“ eftir J. Rosamond Johnson við texta James Weldon Johnson. Um hann hefur verið sagt: „Söngurinn er þakkarbæn fyrir trúfesti og bæn um frelsun fyrir þau sem ákalla í þrældómi og fullvissa fyrir Ameríkufólk af afrískum uppruna“. (Vefsíða WCC, mín þýðing). Ég þýddi sálminn… Halda áfram að lesa Lofsyngjum Lausnarann
Jólasálmur
Drottinn Kristur kominn er – þannig byrjar eftirfarandi jólasálmur. Hann var lengi í smíðum hjá mér og lauk ég við hann 2014. Oft hef ég notað vísuorð úr honum í ræðum: Móðurfaðmur Guðs fær gætt, Guð og heimur mætast. Nú hef ég lokið við lítið lag sem ég raulaði oft við sálminn og vil deila… Halda áfram að lesa Jólasálmur
Þrjár landslagsmyndir – minningar frá sumrinu 2022
Þá hef ég verið á námskeiði í olíumálningu við Myndlistaskólann á Akureyri. Hér eru þrjár landslagsmyndir – minningar frá síðast liðnu sumri. Við hjónin fórum í Hvalvatnsfjörð með systur hennar og manni um mitt sumar. Í september gengum við upp á Heljardalsheiði, en á leiðinni niður af heiðinni var birta og skuggar áhugaverðir við vörðuna… Halda áfram að lesa Þrjár landslagsmyndir – minningar frá sumrinu 2022
Þrjár landslagsmyndir
Einþrykk með akrýlmálningu – stærð ca. 15×15 cm. Myndaljóð í fáum pensilstrokum og litaþrykki, birtist náttúran í yfirnáttúrlegri sýn, að sjá er að lifa augnablikið, andartakið sem varir við, í huga, hjarta, tengir mig við veröldina, Guðs dýrlegu sköpun.
Litla kapellan í Vatnaskógi
Undanfarið hef ég ásamt ágætum félögum mínum verið að skrifa kafla í bókinni Hér á ég heima – 100 ára afmæli Vatnaskógar. Hugurinn hefur hvarflað til þess tíma þegar ég starfaði þar með frábæru fólki. Ég er óendanlega þakklátur fyrir starfið í Vatnaskógi og helgi staðarins. Auðvitað vil ég hvetja alla til að gerast áskrifendur… Halda áfram að lesa Litla kapellan í Vatnaskógi
Gleði í skugga ógnar- páskaræða
Gleðilega páska! Við erum að halda mestu gleðihátíð í heimi! Vissuðið það? Það er önnur gleði en þegar fólk gengur syngjandi glatt úr bænum eftir ballið. Eða þegar liðinn fagna sigri. Eða þegar stríðslokum er fagnað. Gleði páskanna er annars kona og dýpri gleði og innilegri. Það er meira eins og fagna vini eftir langan… Halda áfram að lesa Gleði í skugga ógnar- páskaræða