Fyrsti jólasálmurinn

Upphaflega flutti ég þessa jólaræða í Glerárkirkju á jóladag 1999 og svo 2010 í Munkaþverárkirkju og 2016 í Ólafsfjarðarkirkju og líklega í síðasta sinn í Laufási 2023. Ég las ljóðið í ræðunni vers fyrir vers eins og R. E. Brown setur það upp og reyndi fyrir mér að útskýra textann í heild með einhvers konar… Halda áfram að lesa Fyrsti jólasálmurinn

Hinsta stund og kærleikurinn

Ræða flutt í Glerárkirkju á síðasta degi kirkjuársins 2016 þann 20. nóvember. Texti dagsins var Mt.25.31-46, Dæmisagan um Mannsoninn og dóminn á efsta degi. Jesús fer fram á að við gerum miskunnarverkið, kærleikurinn er ekki orðin tóm heldur samstaða með þeim smæstu. Kærleikurinn er að taka sér stöðu með þeim, vera í þeirra hópi, eins og… Halda áfram að lesa Hinsta stund og kærleikurinn

Published
Categorized as Ræður

Frelsi, siðbót eða bylting

Ræða flutt á siðbótardaginn í Glerárkirkju 30. september 2016. Það var daginn eftir kosningar. Textar dagsins voru: Jer 31.31-34; Róm 3.21-28; Jóh 8.31-36. Þema ræðunnar voru orð Jesú í guðspjallinu: „Sannleikurinn mun gera ykkur frjáls“. Og: „Ef sonurinn frelsar ykkur munið þið sannarlega vera frjáls“. Það voru sungnir sálmar eftir Lúther: Upphafssálmur sb. 335: Guð helgur andi; Lofgjörðarvers… Halda áfram að lesa Frelsi, siðbót eða bylting

Himnesk veisla á jörð

Ræðan Himnesk veisla á jörð var flutt á 20. sunnudag eftir þrenningarhátíð. Hún hefur verið margnýtt og endurskoðuð. Ræðan endurspeglar Kaupmannahafnarár okkar hjóna 1995 þar sem ég var við framhaldanám við guðfræðideildina og sjálfstæðar rannsóknir. Eftir að ég kom heim hlustaði ég á erindi dr. Gunnars Kristjánssonar um Jón Vídalín og postillu hans. Ég reyndi ræðulist… Halda áfram að lesa Himnesk veisla á jörð

Published
Categorized as Ræður

Jesús ruglukollur eða Guðs sonur að fyrirgefa syndir

Ræða flutt í Ólafsfjarðarkirkju 19. sunnudag eftir þrenningarhátíð 2. október 2016. Kirkjukórinn söng í guðsþjónustunni sálminn minn Vísa mér, Guð, á vegu þína, sem ég birti hér á vefnum fyrir nokkrum dögum. Guðspjallið var úr Matteusarguðspjalli 9: 1-8 um lama manninn sem borinn var til Jesú. En Jesús fyrirgaf honum syndirnar og sagði: „Vertu hughraustur,… Halda áfram að lesa Jesús ruglukollur eða Guðs sonur að fyrirgefa syndir

Dramb er falli næst

Ræða flutt í Akureyrarkirkju 18. september 2016 sem var 17. sd. eftir þrenningarhátíð. Guðspjallið var Lk. 14. 1-11 um dæmi Jesú í húsi farísea nokkurs. Sungnir voru sálmar úr Sálmum 2013. Í guðspjallinu ræðir Jesú um hefðarsætin og þá leið sem hann valdi sér sjálfur með að þjóna í heiminum.

Published
Categorized as Ræður

Guð einn sem skapar lífið og elskar

Ræða flutt í Glerárkirkju 4. september í kvöldmessu. Guðspjallað úr Fjallræðunni um að horfa á fuglana og liljur vallarins í Mt. 6, 24-34. Jesús áminnir þar um að vera ekki áhyggjufull en um leið er þetta ögrandi ræða um að treysta á Guð. Jesús segir þar: „Enginn getur þjónað tveimur herrum“.

Published
Categorized as Ræður

Að gera eða vera

Ræða flutt í Akureyrarkirkju 7. ágúst 2016 að kvöldi dags. Sungnir kvöldsálmarnir Nú hverfur sól í haf (Sb. 592) og Ó, vef mig vængjum þínum (Sb. 594). Textinn var um Faríseann og tollheimtumanninn sem fóru upp í helgidóminn að biðja í Lk. 18. 9-14. Við erum svo upptekin við að gera allt mögulegt að trúin… Halda áfram að lesa Að gera eða vera

Published
Categorized as Ræður

Ræða á sjómanndegi – Sögurnar um lífsháskann

Ræða flutt á sjómannadegi, upphaflega á Húsavík 7. júní 2015 og aðlöguð ári síðar á  5. júní 2016 og flutt í Glerárkirkju. Textinn úr guðspjalli Matteusar Mt 8.23-27. Þá voru fluttir tveir nýlegir sálmar annar eftir Hjört Pálsson sb. 831: Þeir lögðu frá sér fisk og net. Kannski dálítið ögrandi á sjómannadegi. Og hinn sálmurinn, lag… Halda áfram að lesa Ræða á sjómanndegi – Sögurnar um lífsháskann

Published
Categorized as Ræður

Óttalegur Lasarus

Ræða flutt við messa í Lögmannshlíðarkirkju 29. maí 2016. Það var 1. sd. eftir þrenningarhátíð og guðspjalltextinn ein af dæmisögunum í guðspjalli Lúkasar um Lasarus, beiningarmaðurinn við dyr ríka mannsins (Lk 16.19-31).

Published
Categorized as Ræður