Íhugun þessi um steindu gluggana í kór Akureyrarkirkju orti ég þegar ég var að undirbúa aðventukvöld í kirkjunni 2009. Þá lét ég lesa textana sem tengjast gluggunum sem eru úr forsögu Lúkasarguðspjalls. Þar eru lofsöngvar hver öðrum stórfenglegri sem kirkjan hefur lesið í tíðargjörð sinni í gegnum aldirnar. Miðglugginn frægi frá Englandi túlkar atburðinn þegar… Halda áfram að lesa Steindu gluggarnir í kór Akureyrarkirkju
Author: Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi
Opinberunarhátíð á þrettánda degi jóla
Ræða saman 2002 en þá bar þrettándinn upp á sunnudag og var dagurinn haldinn hátíðlegur í Akureyrarkirkju. Texti þrettándans er Matt. 2.1-11 um tilbeiðslu vitringanna. Hér birti ég sálminn: Drottinn Kristur kominn er.
Andlit Jesú – nýjársræða
Ræða upphaflega flutt á Dalvík 2004 en endurskrifuð fyrir nýjársdag 2014. Hún gengur út frá Lúk. 2.21 og myndunum mörgu af Jesú, mynd um andlit Jesú, tveimur krossum íslenskum, Uppsa-Kristi og roðunni frá Húsavík.
Tíminn og eilífðin
Ræða flutt í Glerárkirkju við aftansöng á gamlársdag 2013. Textana má lesa hér. Guðspjallið er úr Lúk. 13.6-9. Tíminn og eilífðin er gjarnan íhuguð um áramót.
Maríuljóð frá Betlehem
Maríuljóð frá Betlehem er jólakveðja mín til vina minna og allra sem vilja við henni taka. Ljóðið er samið við jólasálminn: We three kings. Það er ekki þýðing því að enski sálmurinn er ræða vitringanna en mér fannst áhugaverðara að setja mig í spor Maríu guðsmóður. Ég sé kirkjuna, alla tilbiðjendur Drottins Jesú í hennar… Halda áfram að lesa Maríuljóð frá Betlehem
Jólaboðskapur Lúkasar og Matthíasar
Jólaræða flutt í Glerárkirkju við miðnæturmessu á jólanótt 2013 en upphaflega í Grundarkirkju 2010. Jólaboðskapur Lúkasar hugleiddur í tengslum við æskuminningu Matthíasar Jochumssonar í jólaljóði hans frá 1891. Það er mögnuð útlegging á jólaboðskapnum þar sem Matthías biður jólabarnið að snerta sig.
Mannréttindabarátta Jóhannesar og Jesú
Ræða var flutt í Akureyrarkirkju 4. sunnudag í aðventu 2013 út frá Jóh. 1 um vitnisburð Jóhannesar skýrarara. Guðspjöllin lögðu grunn að ákveðnum grundvallargildum fyrir mannlegt samfélag, í dag eru mannréttindi sett samfélögum til grundvallar sem eiga þó rætur að rekja nokkuð til guðspjallanna. Jóhannes og Jesú lögðu grunn að mannréttindabaráttu á sínum tíma eins… Halda áfram að lesa Mannréttindabarátta Jóhannesar og Jesú
Þú mikli læknir
Þú mikli læknir samdi ég nú á jólaföstu 2013 í anda Móður Teresu. Reglubæn Boðbera kærleikans var fyrirmynd mín eða innblástur. Hún er í íslenskri þýðingu í bókinni: Móðir Teresa: Friður í hjarta á bls. 64-65. Ég vil tileinka þessa bæn Hjálparstarfi kirkjunnar, djáknum, læknum og hjúkrunarfólki. Látum bænina verða okkar fyrsta verk að morgni áður en… Halda áfram að lesa Þú mikli læknir
Fegurð jólasálmanna
Inngangur: Það kemur fyrir þegar við prestarnir erum fengnir til að tala á jólafundum að það er nefnt við okkur að segja eitthvað fallegt um jólin. Mér datt í huga að taka þeirri áskorun að segja eitthvað fallegt. Fegurð er eðlilega smekksatriði svo að hér tala ég frá mínum bæjardyrum séð.
Aðventuhugvekja á fullveldisdegi 1. des.
Það er ekki oft að fullveldisdagurinn og 1. sunnudagur í aðventu ber upp á sama dag. Mér kom strax í huga þjóðskáldið Matthías Jocumsson þegar ég var beðinn að tala á þessu aðventukvöldi. Hann átti ekki í neinum vanda með að vera bæði þjóðlegur og kristilegur. Allt átti að hafa þjóðlegan grundvöll, eins og hvatningar… Halda áfram að lesa Aðventuhugvekja á fullveldisdegi 1. des.