Ræða flutt á gamlársdag í Grenivíkurkirkju 2017 við aftansöng. Lagt út frá textanum Jóh. 14.37: „Frið læt ég yður eftir, minn frið ger ég yður.“ Á dimmum bakgrunni líðandi stundar boðaði ég nýjárssólina sem aldrei hnígur til viðar.
Flokkur: Ræður
Ræður sem ég flyt
Undrun og þakklæti – jólaræða
Ræða flutt í Laufási á öðrum degi jóla. Kórinn söng í upphafi sálm nr. 88: Himins opnast hlið. Eftir sálmaskáldið frá Laufási Björn Halldórsson. Tvær tilfinningar voru dregnar fram undrun og þakklæti í ræðunni, trúarlegar tilfinningar.
Kristniboð og mannúð Krists
Ræða flutt á kristniboðsdegi 2017. Hafði ég með í för nokkra muni frá Afríku sem ég sýndi ásamt klæðnaði. Prédikunartexti var út frá Matt 9.35-38: Jesús fór nú um allar borgir og þorp og kenndi í samkundum þeirra. Hann flutti fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi. En er Jesús sá mannfjöldann kenndi… Halda áfram að lesa Kristniboð og mannúð Krists
Gegn stríði – Ræðan sem ég varð að flytja
Þá er það hin ræðan í anda Erasmusar frá Rotterdam, sem ég varð að flytja. Nú er það bók Erasmusar Gegn stríði sem er andagiftin og uppgjör við siðbót eftir 500 ár. Þessi texti Erasmusar á vel við í dag þegar veröldin stendur frammi fyrir stríðsógn, nú eins og þá. Stríð er fáránleiki og brjálæði. Það… Halda áfram að lesa Gegn stríði – Ræðan sem ég varð að flytja
Lof heimskunar – ræðan sem ég þorði ekki að flytja
Eftir lestur á bók Erasmusar Lof heimskunnar skrifaði ég þessa ræðu án þess að hika, smálagfæringar eftir á, en hún passaði ekki sem hugvekja í Taizé messu. Eða þorði ég ekki að flytja hana, þess vegna birti ég hana hér, til að ögra mér og þeim sem leggur í það að lesa ræðuna.
Brauð fyrir eilífðina
Ræðan var flutt við guðsþjónustu í Akureyrarkirkju 18. mars 2007 sem var 4. sunnudagur í föstu. Textinn var Jh. 6. 47-5, samkvæmt B textaröð. Ef manni væri boðið brauð sem sagt væri að gæfi eilíft líf myndi maður kaupa það? Hugleiðing um orð Jesú að brauðið sem hann gefur sé þannig.
Vor Guð er borg á bjargi traust
Ræða flutt 2. mars 1997 á 3. sunnudegi í föstu. Texti: Jóh. 8:42-51, textaröð B. Sálmar: Sb. 133: Jesús eymd vora alla sá. Sb. 284: Vor Guð er borg á bjargi traust. Sb. 42: Vér stöndum á bjargi, sem bifast ei má. Sb. 56: Son Guðs ertu með sanni.
Ræða á konudegi: Lífsferill – ævisaga
Ræða á sd. í föstuinngangi fyrst flutt í Grundarkirkju í Eyjafjarðarsveit 2011 og ári síðar í Tjarnarkirkju í Svarfaðardal 19. febrúar 2012 nokkuð breytt. Lagt út frá B-textaröð, Lk. 18. 31-34:
Kraftaverk, sköpun eða náttúran eintóm
Ræða á bænadegi að vetri í Glerárkirkju 29. janúar 2017. Ræða flutt á bænadegi að vetri við messu í Glerárkirkju 29. janúar 2017 sem var 4. sd. eftir þrettándann. Textaröð (B): Guðspjall: Matt 14.22-33
Kærleiki Krists knýr oss
Ræða flutt á sunnudegi í samkirkjulegri bænaviku 2017 í Akureyrarkirkju. Þema vikunnar var tekið frá Páli postula þetta árið úr 2. Kor. 5. 18: „Kærleiki Krists knýr oss“. Textarnir sem valdir höfðu verið að þessu sinni voru Es. 36. 25-27, 2. Kor. 5. 14-20 og Lúk. 15. 11-24. Kór Akureyrarkirkju tveir bænasálma eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson… Halda áfram að lesa Kærleiki Krists knýr oss