Ræða flutt á gamlársdag á Siglufirði. Loftslagsráðstefnan í París var ofarlega á baugi eins og ég kemst að orði í ræðunni: „Það er byrjuð ný öld þar sem frelsi og kærleikur fara saman. Við getum ekki haldið fram hömlulausi frelsi til framtíðar, heldur verður frelsið að vera leitt af visku og kærleika til sköpunarinnar, náttúrunnar,… Halda áfram að lesa Hafís í París – áramótaræða
Flokkur: Ræður
Ræður sem ég flyt
Fegurðin æðsta, list og trú
Ræðan var flutt við barokkmessu 17. október 2015 sem var á vegum Tónskóla þjóðkirkjunnar. Nemendur fluttu þar verk frá Barokktímanum og sungu. Ræðan er hér nokkuð aukinn og andar af hugðarefni mínu þennan októbermánuð um trú og list. Því miður heyrir þú ekki tónlistina lesandi góður en nokkrar myndir getur þú skoðað þar sem eru… Halda áfram að lesa Fegurðin æðsta, list og trú
Kraftaverkin, raunveruleikinn og lífið
Ræða flutt í Glerárkirkju við kvöldmessu 6. september 2015, 14. sd. eftir þrenningarhátíð. Guðspjallið var um blinda manninn við Betesdalaugina úr 5. kafla Jóhannesarguðspalls, lexía Sálm. 103, 1-6 og pistill Gal. 2, 20. Í ræðunni bar ég saman frásagnir Jóhannesar um tvo blinda menn í 5. og 9. kafla. Kraftaverk er eitthvað sem böglast fyrir… Halda áfram að lesa Kraftaverkin, raunveruleikinn og lífið
Orðin mörgu, sannleikurinn og Guð
Ræða flutt í Akureyrarkirkju 23. ágúst á 12. sunnudegi eftir þrettánda. Textarnir voru Davíðssálmur 40, 2-6, Jakobsbréf 3, 8-12 og guðspjallið Matt. 12, 31-37. Þetta eru kröftugir textar sem krefjast samræmis milli orða og verka, um sannleika og að lifa frammi fyrir Guði í öllu. Guð er meira en hugmynd. Guð hefur með sannleikann að… Halda áfram að lesa Orðin mörgu, sannleikurinn og Guð
Hjartans mál – Páskaræða
Ræðan var flutt upphaflega á páskadag í Möðruvallklausturskirkju 2014. Í ræðunni leitaðist ég við að svara spurningunni: Hvað er upprisan? Þó að maður vilji reynast skynsamur í anda tímans þá er rök hjartans sem birtast í upprisunni grundvöllur fyrir mannlegri reisn ekki síður en mannréttindayfirlýsingar og það sem meira er að hinn upprisni Kristur birtir… Halda áfram að lesa Hjartans mál – Páskaræða
Biblíufélagið 1815-2015 – Saga að norðan
Ræða flutt í Grenivíkurkirkju á Biblíudegi 2015. Í tilefni af 200 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags sagði ég sögu Ebenezer Hendersonar og ferða hans norður í land sumurin 1814 og 1815 þar sem hann kynntist sr. Jóni lærða Jónssyni sem var upphaf af bréfaskriftum þeirra um árabil. Þetta er þáttur um stofnun Biblíufélagsins og athyglisverður.
Opinberunarhátíð á þrettánda degi jóla
Ræða saman 2002 en þá bar þrettándinn upp á sunnudag og var dagurinn haldinn hátíðlegur í Akureyrarkirkju. Texti þrettándans er Matt. 2.1-11 um tilbeiðslu vitringanna. Hér birti ég sálminn: Drottinn Kristur kominn er.
Andlit Jesú – nýjársræða
Ræða upphaflega flutt á Dalvík 2004 en endurskrifuð fyrir nýjársdag 2014. Hún gengur út frá Lúk. 2.21 og myndunum mörgu af Jesú, mynd um andlit Jesú, tveimur krossum íslenskum, Uppsa-Kristi og roðunni frá Húsavík.
Tíminn og eilífðin
Ræða flutt í Glerárkirkju við aftansöng á gamlársdag 2013. Textana má lesa hér. Guðspjallið er úr Lúk. 13.6-9. Tíminn og eilífðin er gjarnan íhuguð um áramót.
Jólaboðskapur Lúkasar og Matthíasar
Jólaræða flutt í Glerárkirkju við miðnæturmessu á jólanótt 2013 en upphaflega í Grundarkirkju 2010. Jólaboðskapur Lúkasar hugleiddur í tengslum við æskuminningu Matthíasar Jochumssonar í jólaljóði hans frá 1891. Það er mögnuð útlegging á jólaboðskapnum þar sem Matthías biður jólabarnið að snerta sig.