Þegar hugsun mín slokknar

Hvað verð ég þegar hugsun mín slokknar?
Þegar ég hætti að vita af mér,
þegar líkami minn sundrast
hætti ég þá að vera ég?

Dauði. Endalok.

Þó veit ég að lífið heldur áfram,
tilveran er sem betur fer ekki háð minni vitund. 

Hún er stærri en svo.
Þó að vitund mín slokkni 
þá ert þú eilíf vitund tilverunnar, 
skapari minn, það nægir mér.
Þannig má ég hvíla í þér um eilífð,
ljós mitt og líf.

Guðm. G.

Guðmundur Guðmundsson's avatar

Eftir Guðmundur Guðmundsson

Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

Færðu inn athugasemd