Ljós Guðs anda

gler_ljosaspil_sunna_kristrun-e1515702800817

Hér er lokaútgáfa af sálminum mínum Ljós Guðs anda. Hann er bæn um að við mættum vera ljós í heimi, endurskin frá frumglæði ljóssins og skilja betur leyndardóm þjáningar Drottins. Hvaða þýðingu hefur krossinn fyrir okkur? Hann er ortur að hluta út frá texta í guðspjalli Matteusar:

„Sú þjóð sem í myrkri sat, sá mikið ljós. Þeim sem sátu í skugglandi dauðans, er ljós upp runnið“ (Mt. 4.16).

Lagið hef ég verið að vinna um tíma, samið til að lyfta textanum og beina huganum til himna í bæn og þökk.

Ljós Guðs anda

Guð faðir lof og þökk sé þér
sem þínar gjafir veitir mér.
Það allt sem þarf ég þigg ég frá
þér, þinnar náðar njóta má.
Þú lætur himna ljósið þitt
svo lýsa yfir fólkið mitt
að unum við glaðvær öll við sitt.

En þegar skýin skyggja á
það skin sem bjart þér stafar frá,
þá bið ég soninn þinn með þrá
mig þvílíku’ myrkri frelsi frá.
Ég ástúð sé í augum hans
sem alla þjáning syndarans
bar ljúfur á krossi’ í líking manns.

Með börnum þínum biðja vil
að betur leyndardóminn skil,
að þjáning Drottins vísar veg
til visku ljós að sjái ég.
Það ljós Guðs anda ljáðu mér
að lifi ég þér eins og ber
og andlit mitt skíni skært með þér.

Guðm. G.

Published
Categorized as Sálmar

Eftir Guðmundur Guðmundsson

Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

Færðu inn athugasemd