Bænir og íhuganir Keating 3

Þessi íhugun hefur verið mér leiðarljós á erfiðum reynslutímum. Það var kallað forsjónin hér áður fyrr, líklega til að nefna Guð ekki á nafn, af virðingu eða feimni. Forsjón er ágætt orð eins æðruleysi og treysta á æðri mátt. Þannig nálgast biðjandinn LÍFIÐ sem streymir áfram. Góð íhugun og bæn um að vona á Guð:… Halda áfram að lesa Bænir og íhuganir Keating 3

Bænir Keating og íhuganir 2

Önnur þýðing mín á bænum og íhugunum Keating er um uppsprettu kyrrðarbænarinnar. Á síðustu áratugum hefur margt kristið fólk uppgötvað á ný kenninguna um þríeinan Guð og ekki lengur lagt ofuráherslu á kenningar heldur tengsl, kærleikssamfélag guðdómsins, föður og sonar og heilags anda, sem við megum tengjast í bæn og íhugun. Þessi íhugun er dæmi… Halda áfram að lesa Bænir Keating og íhuganir 2

Bænir Keating 1

Angistin í garðinum eftir El Greco

Undanfarið ár hef ég stundað tvenns konar setur. Annars vegar kyrrðarbæn þar sem játast er nærveru Guðs, og hins vegar eins og listamenn tala um að setjast við list sína. Að játast Guði er að játast LÍFINU og að stunda “sjónlist” er að horfa og sjá. Bænir Thomas Keating heitins, talsmaður kyrrðarbæna hreyfingarinnar, hafa verið… Halda áfram að lesa Bænir Keating 1

Jólafrásagnir, helgisögur og raunveruleiki

Gleðileg jól! Við eigum tvær jólasögur í Nýja testamentinu. Það er jólaboðskapur Lúkasar. Svo er það jólaboðskapur Matteusar. Þær fléttast nokkuð saman í huga okkar og jólasálmunum sem við syngjum. Matteus talar um Betlehemsstjörnuna og komu vitringanna. Sumir telja þetta helgisagnir um yfirnáttúrlega hluti sem eiga ekkert skilt við raunveruleikann. En á jólum leyfum við… Halda áfram að lesa Jólafrásagnir, helgisögur og raunveruleiki

Hvítasunnusálmur frá Suður-Ameríku

Á samkirkjulegri bænaviku á Akureyri 2015 var þessi sálmurinn frumfluttur í íslenskri þýðingu minni. Hann er eftir Simei Monteiro en 2. og 3. erindið er frumsamið í sama anda. Hann er ákall um komu andans að fólkið og jörðin fái lifað. Hér með textanum fylgja nótur á Pdf-formi og lagið á MIDI formi fyrir þá sem… Halda áfram að lesa Hvítasunnusálmur frá Suður-Ameríku

Ég hlusta – Biblíuljóð

Ég hlusta – hann er sá sem talar. Ég er upplýstur – hann er ljósið. Ég er eyrað – hann er orðið. (Ágústínus kirkjufaðir, hjá E. Brown, I. bini. bls. 156.) Ég rakst á þessi tilvitnun í Ágústínus kirkjuföður nú fyrir Biblíudaginn sl. sunnudag í ritskýringu E. Brown á guðspjalli Jóhannesar. Grípandi orð sem ég… Halda áfram að lesa Ég hlusta – Biblíuljóð

Published
Categorized as Sálmar Tagged

Sálmar og bænalíf – Fyrri hluti: Tilfinningar bænalífsins

Hér má skoða erindi mitt á YouTube sem flutta var í Glerárkirkju 3. febrúar 2016 á fræðslu- og umræðukvöldi. Í febrúar er viðfangsefnið íhugun, bæn og fasta. Ég byrjaði með umfjöllun um Sálma og bænalíf. Tilfinningar og stef Davíðssálma og sálma kirkjunnar. Hugmyndin var með þessari fyrirlestraröð að draga fram andlega iðkun í kristnum anda… Halda áfram að lesa Sálmar og bænalíf – Fyrri hluti: Tilfinningar bænalífsins

Faðir vorið markmið trúarinnar og lífsins

Faðir vorið markmið trúarinnar og lífsins eru hugleiðingar sem ég hef tekist á við aftur og aftur í gegnum tíðina, að bæn Drottins hafi að geyma markmið trúarinnar og kirkjunnar í heiminum. Þannig hugsaði hann bænina, eðlilega, tel ég. Það er efni sem ég hef unnið mikið með í sérgrein minni í guðfræði, missiologiu eða kristniboðsfræðum,… Halda áfram að lesa Faðir vorið markmið trúarinnar og lífsins