Kristur er farinn!

Ræða flutt á Uppstigningardegi í Glerárkirkju 5. maí 2016. Texti dagsins var guðspjall dagsins úr Lúkasarguðspjalli 24.44-53. Það var góð upplifun að hlusta á Karlakór Akureyrar – Geysir syngja sálma dagsins og flytja svo nokkur lög með krafti og hrífandi fegurð.

Published
Categorized as Ræður

Jakobsglíman – 
lífsglíma okkar tíma

Ræða við messu í Glerárkirkju 21. febrúar 2016 sem var 2. sunnudagur í föstu. Guðspjallatextinn var Mt. 15.21-28 um Kanversku konuna en ég dvaldi aðallega við Lexíuna úr Gt. 1Mós 32.24-30. Sá texti fer hér á eftir:

Kross og ást á guðlausum tímum

Messa í Akureyrarkirkju á sunnudegi í föstuinngangi 2016. Guðspjall var um skírn Jesú í Jórdan, Mt. 3.13-17. Kór Akureyrakirkju söng nýja sálma úr bókinni Sálmar 2013 eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson og sr. Sigurð Pálsson. Sálmana valdi ég í anda tímans og kirkjuársins. Við lifum á þeim tímum eins og Davíðssálmarnir tjá sig um svo það er… Halda áfram að lesa Kross og ást á guðlausum tímum

Biðjum í anda, sannleika og kærleika

Guðsþjónusta í upphafi samkirkjulegrar bænaviku 2016 sem var síðasti sd. eftir þrettándann það árið. Lagt var út frá Ummynduninni á fjallinu, Mt. 17. 1-9. Upphafssálmur sb. 551: Í bljúgri bæn og þökk til þín. Lofgjörðarvers sb. 29: Mikli Drottinn, dýrð sé þér, Guðspjallssálmur sb. 119. 1, 3, 4-5: Þótt holdið liggi lágt. Eftir prédikun sb.… Halda áfram að lesa Biðjum í anda, sannleika og kærleika

Published
Categorized as Ræður

Hafís í París – áramótaræða

Ræða flutt á gamlársdag á Siglufirði. Loftslagsráðstefnan í París var ofarlega á baugi eins og ég kemst að orði í ræðunni: „Það er byrjuð ný öld þar sem frelsi og kærleikur fara saman. Við getum ekki haldið fram hömlulausi frelsi til framtíðar, heldur verður frelsið að vera leitt af visku og kærleika til sköpunarinnar, náttúrunnar,… Halda áfram að lesa Hafís í París – áramótaræða

Fegurðin æðsta, list og trú

Ræðan var flutt við barokkmessu 17. október 2015 sem var á vegum Tónskóla þjóðkirkjunnar. Nemendur fluttu þar verk frá Barokktímanum og sungu. Ræðan er hér nokkuð aukinn og andar af hugðarefni mínu þennan októbermánuð um trú og list. Því miður heyrir þú ekki tónlistina lesandi góður en nokkrar myndir getur þú skoðað þar sem eru… Halda áfram að lesa Fegurðin æðsta, list og trú

Kraftaverkin, raunveruleikinn og lífið

Ræða flutt í Glerárkirkju við kvöldmessu 6. september 2015, 14. sd. eftir þrenningarhátíð. Guðspjallið var um blinda manninn við Betesdalaugina úr 5. kafla Jóhannesarguðspalls, lexía Sálm. 103, 1-6 og pistill Gal. 2, 20. Í ræðunni bar ég saman frásagnir Jóhannesar um tvo blinda menn í 5. og 9. kafla. Kraftaverk er eitthvað sem böglast fyrir… Halda áfram að lesa Kraftaverkin, raunveruleikinn og lífið

Orðin mörgu, sannleikurinn og Guð

Ræða flutt í Akureyrarkirkju 23. ágúst á 12. sunnudegi eftir þrettánda. Textarnir voru Davíðssálmur 40, 2-6, Jakobsbréf 3, 8-12 og guðspjallið Matt. 12, 31-37. Þetta eru kröftugir textar sem krefjast samræmis milli orða og verka, um sannleika og að lifa frammi fyrir Guði í öllu. Guð er meira en hugmynd. Guð hefur með sannleikann að… Halda áfram að lesa Orðin mörgu, sannleikurinn og Guð

Published
Categorized as Ræður

Hjartans mál – Páskaræða

Ræðan var flutt upphaflega á páskadag í Möðruvallklausturskirkju 2014. Í ræðunni leitaðist ég við að svara spurningunni: Hvað er upprisan? Þó að maður vilji reynast skynsamur í anda tímans þá er rök hjartans sem birtast í upprisunni grundvöllur fyrir mannlegri reisn ekki síður en mannréttindayfirlýsingar og það sem meira er að hinn upprisni Kristur birtir… Halda áfram að lesa Hjartans mál – Páskaræða

Published
Categorized as Ræður

Biblíufélagið 1815-2015 – Saga að norðan

Ræða flutt í Grenivíkurkirkju á Biblíudegi 2015. Í tilefni af 200 ára afmæli Hins íslenska biblíufélags sagði ég sögu Ebenezer Hendersonar og ferða hans norður í land sumurin 1814 og 1815 þar sem hann kynntist sr. Jóni lærða Jónssyni sem var upphaf af bréfaskriftum þeirra um árabil. Þetta er þáttur um stofnun Biblíufélagsins og athyglisverður.

Published
Categorized as Ræður