Föstudagurinn langi – undir krossinum

Föstudagurinn langi, þverstæður lífsins, ljós og myrkur mætast, líf og dauði, eins og í þessari mynd eftir Maurice Denis frá ca. 1895, Fórnin á Golgata. Trúuð sál tekur sér stöðu með Maríu, móður Jesú, undir krossinum, íhugar og biður. Hér birtist mín þýðing á Stabat mater dolorosa, mín íhugun um þjáningu lífsins og trúna, guðfræði… Halda áfram að lesa Föstudagurinn langi – undir krossinum

Móðurást

Guðsþjónusta í Húsavíkurkirkju 5. sunnudag í sjövikna föstu sem var 13. mars 2005. Fyrsta textaröð (A): 1. Sam. 2. 1-10, Rm 8. 38-39, Lúk. 1. 46-56.

Published
Categorized as Ræður

Guðleg náð og mannleg öfund

Flutt 27. janúar 2002 á Húsavík og 2. febrúar Ólafsfirði 2004, sem var útvarpsguðsþjónusta. Fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu, A textaröð, guðspjall Mt. 20. 1-16. Ég benti á að eftir þessari dæmisögu  væri óráðlegt að láta Jesú semja um laun sín vegna þess að hann ruglar alla taxta í mannlegu samfélagi. Það var ekki erindi hans… Halda áfram að lesa Guðleg náð og mannleg öfund

Published
Categorized as Ræður

Móðir Guðs á jörð

Jólaræða flutt 1998 í Grímsey og Nesi í Aðaldal og 2002 í Glerárkirkju. Kveikjan að henni var madonnumyndirnar mörgu sem málaðar hafa verið og frásaga Lúkasar sem ber þess merki að hann hafi rætt við Maríu. Stef úr einum af mínum jólasálmum er þemað: Móðurfaðmur Guðs fær gætt, Guð og heimur mætast. Guðspjallið sem lagt var út… Halda áfram að lesa Móðir Guðs á jörð

Í stormi – ræða á sjómannadegi

Altaristaflan á Siglufirði eftir Gunnlaug Scheving

Ræðan var fyrst flutt við sjómannadagsmessu á Dalvík 6. júní 1999 og síðar á Húsavík 10. júní 2001. Textarnir voru hefðbundnir textar sjómannadagsins: Sálm. 107:1-2, 20-31, Post. 27:21-25 eða 1. Jóh. 1:5 – 2:2, Matt. 8:23-27. Þá má lesa með því að smella hér. Þessir sálmar voru sungnir á Húsavík: Inngöngusálmur sb. 10: Vort traust er allt… Halda áfram að lesa Í stormi – ræða á sjómannadegi

Published
Categorized as Ræður

Það bar til um þessar mundir – jólaræða

Ræðan var flutt við aftansöngur í Ólafsfjarðarkirkju fyrst og svo Glerárkirkju 2000. Það er jólaguðspjallið í Lúk. 2. 1-14 sem lagt var út frá. Sögusvið frásagnarinnar voru leidd saman er mynda þá spennu sem hún hefur að geyma, höfðingjar heimsins og barnið í jötunni, hirðarnir og himneskur söngur, leiðir okkur að raunveruleika lífsins sem bar við.

Published
Categorized as Ræður