Páskasálmur – tár Maríu í páskasólinni

Páskasálmurinn er saman út frá frásögninni um Maríu úti fyrir gröfinni á páskadagsmorgni í Jóhannesarguðspjalli 20. kafla. Þetta er ein tilfinningaríkasta frásögn guðspjallsins, um leið og hún er átakanlega sorgleg, hefur hún að geyma glettni sjónarvottsins, sem vafalítið hefur skemmt sér við að segja frá þessu atviki í söfnuðinum. Hún þekkti ekki Meistara sinn, hélt að hann væri grasgarðsvörðurinn. Svo hefur hún hlegið af tómri gleði. Þannig lít ég á þessa frásögu hennar. Lagið er sænskt Tron er för mig en sommaräng eftir Olle Widestrand. Textinn var gerður við þetta lag á árunum 1985-90 og frumfluttur í Akureyrarkirkju á páskum 2009.

Páskasálmur – tár Maríu í páskasólinni

Lag: Tron er för mig eftir Olle Widenstrand

Árdegis, röðull reis úr nótt,      
í roða fór María að gröf Jesú hljótt.
Felldi hún tár á föla jörð
sem fann ekkert til en var náköld og hörð.
Guð hennar var í gröf og svaf,
í guðsdýrkun sinni gaf þakklæti af
smyrsl, sem hún bar við barminn sinn,
en brynjaður vopnum var hermaðurinn.
Gröfin var tóm og gatan auð,
Guð hennar huldi sig, þar stóð hún snauð.
Felldi hún tár við fætur manns
sem fór þarna hjá, framhjá gröf Lausnarans.
María spurði manninn þann
um meistara sinn hvar hann lagt hefði hann.
"María, ég er upprisinn,
ég er alltaf hjá þér, ég, Drottinn Guð þinn".

Guðm. G.

Mauris Denis. Málverkið Noli me tangere frá 1895

Maurice Denis túlkar þessa frásögn í listaverkinu Snertu mig ekki – Noli me tangere frá 1895. Orð Jesú þegar hann birtist Maríu Magdalenu Jóh. 20. 17 (Skoða myndina á vef: http://www.cgfaonlineartmuseum.com/d/denis3.jpg og https://art.rmngp.fr/en/library/artworks/maurice-denis_noli-me-tangere_huile-sur-carton_1895?force-download=894141

Eftir Guðmundur Guðmundsson

Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

%d bloggurum líkar þetta: