Leið pílagrímsins 2:

Morgunstund gefur gull í mund — og kaffibolla

Hvar er næsta kaffihús?

Konan mín vildi helst fara af stað svo snemma að við næðum því þegar birti af degi. En við vorum á göngu að vori svo að það náðist sjaldnast. Þó var farið snemma af stað án þess að nærast nema lítillega og reynt að ná á kaffihús í morgunhressingu. Á einum stað meðan við vorum að bíða í röð eftir kaffi rak ég augun í bækling: Liturgies for the Pilgrim.  Höfundurinn hennar er Seth Grotzke. Ég mátti til að eignast inntak. Það var hin bókin sem ég burðaðist með. Ég var þó ekki eins slæmur og Thor Vilhjálmsson sem hafði borið nokkrar Riddarasögur í sinni pílagrímaferð um árið. Þessi önnur ferðabók mín mætti þýða Bænabók eða helgihald fyrir pílagríma. Hún veitti mér mikla ánægju og samkennd því höfundurinn lýsir í prósaljóðum upplifun pílagrímsins af djúpu innsæi, bæði þrautum og gleði.

Augun opnast fyrir nýjum hlutum á göngunni, hversdagslegum. Líkams vitund vaknar á sterkan hátt, þreyta, sviti, hitasvækja, rigning, bleyta, rok, sársauki, vonbrigði, annars vegar og hins vegar ótrúlega gleði yfir smávægilegum hlutum, góðum móttökum, vináttu og samtölum á veginum, kveðjur og bros, „bon camino“, og kaffibolli.

Málverkið með göngupistlinum er nýjasta olíumálverkið mitt um kaffibolla ofl., handa öllum sem elska kaffi. Kaffið á uppruna sinni í Eþíópíu og Mokka, á suðrænum slóðum, nálægt miðbaug.

Eitt ljóðið er svona í minni þýðingu:

Ó, Faðir ljósanna, frá þér koma allar góðar gjafir,
ég þakka þér fyrir þennan dásamlega kaffibolla.
Þrátt fyrir að vera vanalegur svo ómótstæðilegur.
Þrátt fyrir að vera svo einfaldur svo margslunginn.
Þrátt fyrir að vera víðsvegar svo einstakur.

Á þessu augnabliki er ég að reyna eitthvað hnattrænt en þó svo nærtækt.
Ég er á litlu kaffihúsi á Íberíuskaganum.
Ég heyri óm af samtali en skil svo lítið.
Ég finn ilminn af expressó blandast ókunnugri lykt.
Ég sit á einföldum stól en á framandi slóðum.
Ég er umkringdur því sem er kunnuglegt en finn að ég er útlendingur.

Og þessi drykkur sem ég dreipi á talar til mín um gjöf og samvinnu mannkynsins.
Tré sem eru ræktuð í framandi löndum
sem gefa af sér baunir á uppskerutíð,
þær eru þurrkaðar,
og hreinsaðar,
og pakkað,
og fluttar,
og brenndar,
og malaðar,
og gerðar að kaffi,
og komið til mín í fallegum bolla.

Þessi drykkur hefur verið meðhöndlaður af mörgum,
frá bóndanum,
til verkafólks,
til fluttningafyrirtækja,
til eftirlitsmanna,
til heildsala,
til kaffiþjóna,
og að lokum til mín.

Og í skiptum fyrir allt þetta samstarf
borga ég fáeinar krónur.
Smámuni fyrir þetta skilvirka kraftaverk.

Ó, góði Faðir, ég þakka þér fyrir þennan heita bolla.
Þú gerðir okkur til að rækta þessa jörð og Eden garð bláa hnattarins.
Og þetta er aðeins lítill ávöxtur af því erfiði.
Við sem ímynd þín ráðum yfir þessu landi,
en vegna synda okkar
bregst það við okkur með þyrnum og þistlum.
En vegna náðar þinnar
gefur það miklu meira af sér en ekki
þegar við plægjum og ræktum.

Ó, Faðir, þakka þér fyrir þennan bolla.
Þakka þér fyrir öll sem bera ímynd þína í heiminum og í þessu herbergi.
Takk fyrir óviðjafnanlega sköpun þína.
Takk.

Seth Grotzke

Málverkið með göngupistlinum er nýjasta olíumálverkið mitt af kaffibolla, suðrænum ávöxtum, hnattlíkani og mynd í mynd. Kaffið á uppruna sinni í Eþíópíu og Mokka á Arabíuskaganum, á suðrænum slóðum, nálægt miðbaug. Minning frá Afríkuferð.

Færðu inn athugasemd