Hver er ég í augum Guðs?

All Saints Church í London

Enn sagði Jesús: Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllun heims. Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín… Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér. (Matt 25.34-36, 40)

Hugvekjuna má hlusta á hér:

Að spegla sig í augum Guðs

Á mjólkufernum síðast liðin ár hafa verið ljóð ungmenna. Þau hafa með ljóðum sínum svarað spurningunni: Hver er ég? Mér finnst mörg þeirri góð og ekki síðri en þekktra ljóðskálda, ærleg og heiðarleg, tilraun til að svara þessari ögrandi spurningu sem heimspekingar, skáld og leitendur hafa glímt við um aldir.

Við skulum taka upp þennan þráð, spurninguna um það hver er ég. En setja hana í trúarlegt samhengi. Trúin gefur spurningunni nýja eða aðra vídd. Einn af kirkjufeðrunum hugleiddi spurninguna í bók sem hann kallaði “Játning” og kemst þar að því að hann þekkti í rauninni ekki sjálfan sig fyrr en hann kynntist Guði, þá sá hann sig í nýju ljósi, lærði að þekkja sjálfan sig.

Spurningin sem ég vil að þú hugleiðir með mér er þessi: Hver er ég í augum Guðs? Biblíutextinn sem við lásum gefa tilefni til þess að spyrja sig að því. Skiptir það mig einhverju að sjá spegilmynd mína í augum Guðs. Við flestar guðsþjónustu okkar kristinna manna er farið með blessunarorðin sem segja: “Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig… upplyfti sínu augliti yfir þig…” Svo það hefur all nokkuð að segja fyrir okkur að hugleiða spurninguna hver er ég í augum Guðs. Nýt ég náðar hans, lítur hann til mín með kærleika og elsku?

Að líta þannig á getur veitt nýja vídd í trúnni sem getur verið skemmtileg, að geta séð sig utan frá eða ofan frá, frá sjónarhóli Guðs. Algjört grundvallaratriði varðandi guðlegan húmor, sem er þessi, að taka sig ekki allt of hátíðlega, geta séð skoplegu hliðarnar við sjálfan sig, þetta, að geta brosað með Guði að sjálfum sér. Þannig náum við meiri trúarþroska, held ég. En þá þurfum við að spyrja okkur: Hver er ég í augum Guðs?

Guð í sköpuninni

Kannski finnst þér þetta framandi orðalag að tala um augu Guðs eða jafnvel óþægilegt að hafa augu Guðs vakandi yfir þér signt og heilagt. Ég fyrir mitt leyti sveiflast þarna á milli. Reynum að kafa ofan í og skýra myndmálið.

Guð birtist okkur í náttúrunni, í sköpunarverkinu. Þar getum við séð Guð og þar reynum við nálægð Guðs. Og það gerist stundum að við undrumst handaverk Guðs, sjáum regluna í öllu og viskuna sem úrverk sköpunarinnar gengur eftir. Guð er mikill og viska hans meiri en svo að ég geti komið henni fyrir í huga mínum.

Börnin mín áttu Tölvubiblíuna sem við skoðuðum stundum. Þar er ný útgáfa af sköpunarsögunni sem mér finnst sniðug. Johannes Möllehave grípur þar til myndmálsins um augu Guðs til að gefa til kynna visku Guðs sem var í upphafi og er að baki allri sköpun hans. Það birtast tvö augu á skjánum og í bókinni. Vísan er svona:

Í upphafi var Guðs augna-par

það eina sem í heimi var.

Guð horfði í kring og sá og sá

hvar svaramyrkrið lá og lá.

Öll veröldin er Guðs valdi í.

”Verði ljós!” hann sagði því.

Sem keilan gula sem þú sérð

sért þú með vasaljós á ferð.

Barnsleg og skemmtileg hugmynd og útskýring á frekar erfiðri hugarþraut. En er það ekki oft að þessi reynsla okkar af Guði í verkum hans, gefa okkur hugboð um að við erum í stórkostlegu sambandi við Guð sjálfan, við erum verk hans, við erum gerð til samfélags við hann, hann gefur okkur dag og nótt, hvern hjartslátt, hvert andartak. Svo algjörleg erum við háð Guði. Og það er gott, oftast, en stundum ógnvekjandi.

Guð í mannlegu samfélagi

Við höfum þó einhvern grun eða reynslu af því að það sé eitthvað öfugsnúið við mannlega tilveru. Og Guð hefur eitthvað með það að gera, ekki að tilvera okkar sé öfugsnúin, heldur birtist Guð okkur í mannlegum samskiptum. Sigurbjörn Einarsson, biskup, íhugar það í bókinni Sárið og perlan, sem fjallar um píslarsöguna. Þar segir hann orð sem ég hef staðnæmst við í umhugsun minni: “Þegar þú horfir í augu við aðra manneskju þá horfist þú í augu við Guð”.

Þá strax upplifum við þetta misræmi sem við rekumst svo oft á í samskiptum við annað fólk. Samviskubit eða sekt yfir einhverju sem við höfum sagt eða gert, eða þá afskiptaleysi og sinnuleysi. Hvað er þetta? Samviskan. Guð birtist okkur í samviskunni, í mörgum andlitum, en alltaf sá sami, í augum meðbróður þíns og systur. En við megum ekki gleyma jákvæðu hliðinni. Guð faðmar mig í stráknum mínum þegar hann var lítill og gerir enn. Hann kom til mín og lagði hendur sínar utan um hálsinn á mér og horfði í augun mín sínum fallegu himinbláu augum og sagði “mamma”. Guð er kærleikur og við elskum Guð með því að elska meðbróður okkar og systur sem hann sendir í veg okkar. Þar lifum við Guð ekkert síður en í náttúrunni.

Guðfræði Matteusar er þessi að Jesús er nálægur í meðbróður okkar og systir sem er þurfandi. Það er í kærleiksþjónustu að við erum að þjóna Guði. Það þarf nokkuð áræði að sjá sig þannig í augum Guðs, að prófa sig, hvernig er ég í mannlegum samskiptum. Er ég fúll á móti? Eða er ég almennilegur?

Það er merkilegt hvað við getum verið dómhörð við aðra. Hafið þið ekki tekið eftir því að oft segir maður eitthvað um einhvern og svo koma orðin í bakið á manni, vegna þess að maður er ekki hótinu skárri sjálfur. Dómur í mannlegu samfélagi er oft svo miskunnarlaus, við höldum að við séum svo réttlát og jafnvel með guðlegu umboði, en Guð dæmir ekki svo hart. Ef við sjáum Guð í augum náunga okkar þá lærist okkur að vera mild eins og hann, vegna þess að við höfum sjálf notið miskunnar Guðs. Á síðasta sunnudegi kirkjuársins í lúthersku kirkjunni hugleiðum við dóminn á efsta degi. Sú hugsun verður okkur ekki erfið ef við lærum þessa aðferð sem Matteus kennir okkur á að sjá Guð í meðbróður okkar og systur.

Guð í persónu

En get ég horfst í augu við Guð sjálfan? Hvar finn ég hann? Sumir leita inn á við, inn í sjálfan sig. Við erum gerð af visku Guðs og margt merkilegt að skoða í sálinni, en Guð finnum við ekki þar. Einhver segir að Guð sé í naglanum, annar í líkneskinu eða hinu og þessu, en Guð er ekki heldur í sköpuninni, vegna þess að Guð er skaparinn en ekki skepnan. Við getum áttað okkur á Guði í samvisku okkar og skynsemi að einhverju leyti en þar þekkjum við ekki Guð eins og hann er vegna þess að það er eitthvað öfugsnúið við mannlega tilveru. Þess vegna kom Guð til okkar sem persónu, sem talaði til okkar, hlustaði á okkur, horfðist í augu við vini sína. Þannig þekkjum við Guð eins og hann er í Jesú Kristi. Það er fagnaðarerindið sem kirkjan boðar. Þegar við lesum saman frásagnirnar um hann, þegar við biðjum saman í hans nafni, þá er hann hér, lítur til okkar með mildi, kærleika og ást.

Að lokum langar mig að flytja mína bæn sem svar við spurningunni: Hver er ég?

Hver er ég?
Efnahvörf og rafboð,
örsmá vera í alheimi um litla stund,
þó hugsandi efni
sem veit af sér á meðan er.

Mikið undur er það
að sjá sólina rísa og lýsa,
tunglið um nætur ganga sína leið,
stjörnuhiminn óravíddir birta,
og hug minn greina,
að ég er hluti af þessu öllu,
undrast að vera til,
skapaður í Guðs mynd.

Takk Guð fyrir að þú hefur gefið mér
vit til að skilja, þrá til þín,
sem ert á bakvið undur
sköpunarinnar.

Færðu inn athugasemd