
Formáli
Mér kom í hug að skrifa ferðasögu eða minningar frá pílagrímaferð okkar Ingibjargar, konu minnar, síðast liðið vor (2026), til Santiago De Compostela portugölsku Jakobsleiðina, með sjónum upp með Portúgal og svo inn í land til Spánar. Auðvitað tók ég margar myndir svo sagan verður myndskreytt. Þessi ganga varð mér andlegt ferðalag, ekki minna innra ferðalag sálarinnar um ýmsa kima og djúp, uppgjör, glíma, Jakobs-glíma við Guð og menn og sjálfan mig. Vonandi einhverjum til gagns öðrum en sjálfum mér, hvatning til að halda í pílagrímaferð í raun og / eða í anda. Ferð kristins manns um heiminn er pílagrímaganga og held að það sé ganglegur lærdómur fyrir alla hverrar trúar sem þau eru.
Nafnið: Leið pílagrímsins
Vinur minn lánaði mér bók um rússneskan pílagríma ónafngreindann sem vildi læra að biðja án afláts. Bókin heitir í þýðingu Ísaks Harðarsonar Leið pílagrímsins. Ekki lagði ég í að bera aðrar bækur með mér á Jakobsveginum þegar ég pakkaði í bakpokann en hún fékk að fljóta með. Hans leið var Jesú-bænin sem er í einfaldastri mynd nafnið Jesús en mér tömust í lengri útgáfu: Drottinn Jesús Kristur, Guðs sonur, vertu mér syndugum líknsamur.

Nú var ég kominn í mína fyrstu pílagrímagöngu með konu minni og ákvað að fara að dæmi þessa förumanns, nálgast Guð með því að leggja stund á Jesú-bænina. Lagt upp frá Portó í átt til Santiago. Við hjónin gengum meðfram sjónum svo að hafáttinn hjálpaði manni með andardráttinn. Eins og rússneski förumaðurinn fór með Jesú-bænina í takt við andardráttinn gerði ég eins. Andaði að mér og bað: Drottinn Jesús Kristur, Guðs sonur. Og svo frá mér: Vertu mér syndugum líknsamur. Ekki komst ég upp í mörg þúsund sinnum eins og sá rússneski en nokkuð oft.



Eru þetta töfrar eða sefjun eða eitthvað allt annað. Orð hafa merkingu. Þau eru ekki aðeins form, stafir, hljóð. Við gengum í gegnum bæi og þorp. Krossar blöstu við í aðdragandi páska með fjólubláum klæðum. Róðukrossar sum staðar. Kirkjurnar voru sömuleiðis skreyttar og minnt á ávexti jarðar og umhverfið við ölturun. Í sumum þeirra Krists líkneski að bera krossinn. Maríumyndir margar. Hvað merkir þetta allt saman fyrir fólkinu sem bjó hér í Portúgal í þessum þorpum við ógnandi Atlandshafið, við sjávarháskan eins og við sem búum við Íslands strendur.

Nafnið Jesú tengir okkur við Guð, okkar nánustu og fólk, sköpunina, dýra- og jurtaríkið, steina, strendur, haf og loft o.s.frv. En hvers vegna þessi mikla þjáning, sársauki og harmur? Ég hugleiddi það á göngu minni. Minn sársauki var þreyta á göngu og fáeinir aumir blettir á fótum. Á einum stað á ströndinni var átakanleg og stór koparmynd af konum með börnum sem hrópuðu í angist sinni og snéru til hafs. Það var minnismerki um eitt versta sjóslys á svörtu strönd Portúgal. Getur verið að Guð sé að segja og vera til staðar í verstu þjáningu og myrkri sem mannlífið hefur í för með sér? Röklega mætum við þverstæðu í þjáningu og hörmungum, áföllum og harmi. Þá duga ekki orð en getur verið að Guð sé í þjáningunni miðri í píslargöngu með mannkyni öllu?
Nafnið Jesú tengir okkur við Guð. Drottinn Jesús Kristur, Guðs sonur, vertu oss syndugum líknsamur.
