Morgunstund gefur gull í mund — og kaffibolla Konan mín vildi helst fara af stað svo snemma að við næðum því þegar birti af degi. En við vorum á göngu að vori svo að það náðist sjaldnast. Þó var farið snemma af stað án þess að nærast nema lítillega og reynt að ná á kaffihús… Halda áfram að lesa Leið pílagrímsins 2:
Month: nóvember 2026
Leið pílagrímsins
Formáli Mér kom í hug að skrifa ferðasögu eða minningar frá pílagrímaferð okkar Ingibjargar, konu minnar, síðast liðið vor (2026), til Santiago De Compostela portugölsku Jakobsleiðina, með sjónum upp með Portúgal og svo inn í land til Spánar. Auðvitað tók ég margar myndir svo sagan verður myndskreytt. Þessi ganga varð mér andlegt ferðalag, ekki minna… Halda áfram að lesa Leið pílagrímsins
Þekktasti biskup allra tíma – teikning
Þessi teikning sem var æfing í að teikna klæði hefur dulinn boðskap. Teikningin fékk nafnið: Þekktasti biskup allra tíma, heilagur Nikulás eða Sancta Claus, hulinn klæði. Viðeigandi nú þegar jólavesinið byrjar, kannski. Meðan ég teiknaði hugleiddi ég biskupsembættið og nútímalega sýndarbiskupa í litríkum klæðum í anda Coka Cola auglýsingar, jólasveinar í biskupsklæðum eða biskupar í… Halda áfram að lesa Þekktasti biskup allra tíma – teikning
Hver er ég í augum Guðs?
Enn sagði Jesús: Komið þér, hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var búið frá grundvöllun heims. Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér… Halda áfram að lesa Hver er ég í augum Guðs?
Teikning af gömlum vini og örlagavaldi
Teiknaði þessa mynd af vini mínum fyrir mörgum árum og varð á vegi mínum þegar ég var að taka til eða leita í myndasafninu af einhverju allt öðru. Hver er maðurinn?