Himneski Faðir, alheimsins ljós,
þú hugur á bakvið allt,
birt geisla þinn, stjörnu í geimi bjarta.
Ljóminn af himni upplýsi oss
og leiði þó ráð sé valt,
vér leggjum af stað með það ljós í hjarta.
Leið þú þitt fólk yfir lönd og höf,
að ljósið þitt skíni skært
þeim öllum í heimi sem eru’ án vonar.
Kirkjan þín sé æ með opinn arm
í auðmýkt að þjóna kært
í fótspor Guðs elskaða einkasonar.
Faðmur þinn opinn er öllum
þeim sem eru að leita þín
með sjúkdóma, þjáningu, sorg og kvíða.
Samkennd í hjarta og styrka hönd
að styðja uns ljósið skín
veit börnunum þínum með þeim sem líða.
Kærleikur þinn er í Kristi ljós,
við krjúpum við jötu hans
og tilbiðjum undrið sem tindrar af honum,
barnsins, sem fæddist hin fyrstu jól,
vér felum þér líf hvers manns
með friðarbæn, blessun og björtum vonum.
Guðm. G.

Höggmyndin Bæn eftir Einar Jónsson