Þriðja hugvekja út frá ræðum Jesú í Matteusarguðspjalli um trúartraust. Byggir á orðunum í Mt. 6.25-30 í Fjallræðunni. Ljósmyndir af fuglum teknar af Guðrúnu Eggertsdóttur. Aðrir myndir og teikningar gerði ég og loka og upphafslagið Ljós Guðs anda.
Author: Guðmundur Guðmundsson
Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi
Önnur hugvekja út frá ræðum Jesú – bæn hjartans
Önnur hugverkja af fjórtán út frá ræðum Jesú í Matteusarguðspjalli. Bæn hjartans út frá Mt. 6.5-8 í Fjallræðunni. Sálmurinn í upphafi og lok er þýðing mín á norskum sálmi J. Paulli Lær meg og kjenne dine veie, sunginn af kirkjukór Ólafsfjarðarkirkju. Textinn í heild hér á vefnum. Myndir sem bregður fyrir er m.a. altaristaflan í Hálskirkju í Fjóskadal og… Halda áfram að lesa Önnur hugvekja út frá ræðum Jesú – bæn hjartans
Hugvekjur út frá ræðum Jesú
Fram á föstudaginn langa birtast ég hér stuttar hugvekjur út frá ræðum Jesú í Matteusarguðspjalli. Ég hef skreytt þær með altaristöflum af svæðinu, trúarlegum málverkum og öðru myndefni til að gera orðið meira lifandi fyrir þau sem vilja fylgjast með. Þetta er fyrsta af fjórtán hugvekjum. Hún er út frá Sæluboðun Jesú í Mt. 5.1-11 í… Halda áfram að lesa Hugvekjur út frá ræðum Jesú
Hraðnámskeið í bæn – á hljóðskrá
Á fimmtán mínútum kenni ég hér helstu atriði við bænaiðkun, líki henni við sönglistina, nefni Guðmund Jónsson, söngvara, kennara minn og Salvador Sobral sem dæmi. Davíðssálmar eru sameiginleg bænabók kristinna manna og gyðinga. Hann útskýrir Davíðssálm nr. 121 sem byrjar eins og guðsþjónusturnar í evangelísk lútersku kirkjunni: „Hjálp vor kemur frá Drottni, skapara himins og… Halda áfram að lesa Hraðnámskeið í bæn – á hljóðskrá
Skínandi andlit
Ræða flutt í Ólafsfjarðarkirkju á síðasta sunnudegi eftir þrettánda 2. ferbrúar 2020. Textinn var ummyndunin á fjallinu, uppáhaldstexti í uppáhaldsguðspjalli, Mt. 17.1-9. Efnið: En ég tel að ef við göngum út frá skynseminni einni þá skynjum við aðeins tilveru okkar að hluta. Við skynjum hana í raun bæði með huga og hjarta. Í daglegri bæn… Halda áfram að lesa Skínandi andlit
Sjö orð Krists á krossinum og Passíusálmara Hallgríms
Í tilefni af 400 ára ártíð Hallgríms Péturssonar 2014 setti ég saman dagskrá sem var flutt í Möðurvallaklausturskirkju á föstudeginum langa. Nú í ár endurskoðaði ég dagskrána með öðrum kór og organgista í Munkaþverárkirkju. Ég tel þetta vera ágæta íhugun við krossinn á föstudaginn langa, tekur rúman klukkutíma í flutningi. Það geta verið frá sjö… Halda áfram að lesa Sjö orð Krists á krossinum og Passíusálmara Hallgríms
Guð, hann dó í gær – Hvíldardagurinn mikli
Skrýtnasti dagur ársins er í dag – hvíldardagurinn mikli. Ljóðið, Guð, hann dó í gær, er skelfileg íhugun þessa dags, þegar Guð hvíldi í mannlegri gröf. Hverju breytir Guð í raun og veru í mannlegri veröld? Hvert leiða hugsanir trúarbragða og lífskoðanna okkur menn?
Ræða 20. janúar – Samkirkjuleg bænavika og fimm upphrópanir
Ræðan flutt í Akureyrarkirkju 20. janúar þar sem klassískur kór kirkjunnar flutti sálma og messusöng frá ýmsum heimshornum. Í gær byrjuðum við samkirkjulega bænaviku (laugardaginn 19. janúar) með guðsþjónustu í Aðventkirkjunni í Gamla Lundi hér á Akureyri. Þar á eftir áttum við fulltrúar safnaðanna samtal um bæn og helgihald með þeim sem voru samankomnir. Það… Halda áfram að lesa Ræða 20. janúar – Samkirkjuleg bænavika og fimm upphrópanir
Forvitni um Guð – ræða 1. sd. e. Þrettándann
Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi. Ekki veit ég hvernig Ritningarlestrarnir virka á þig. Ekki er hægt að neita því að lesnir eru fornir textar, svona 2000 til 3000 ára gamlir. Því ætti engum að bregða þó ekki sé allt auðskilið. En mannkynið hefur svo sem ekki… Halda áfram að lesa Forvitni um Guð – ræða 1. sd. e. Þrettándann
Jólaboðskapur Matteusar á þrettánda degi jóla
Þennan sálm samdi ég um þessi jól og lagaði lagið að honum sem er eldra. Á þrettánda degi jóla er Jólaboðskapur Matteusar lesinn (Mt. 2.1-11). Það er jóladagur hjá bræðrum og systrum í Rétttrúnaðarkirkjunni og jólaguðspjall Matteusar er lesið um Betlehemsstjörnuna og vitringana: Þeir hlýddu á konung og fóru. Og stjarnan, sem þeir sáu austur… Halda áfram að lesa Jólaboðskapur Matteusar á þrettánda degi jóla