Ræða flutt á kyndilmessu 2. febúar 2014 í Möðruvallakirkju í Hörgárdal sem bar upp á sunnudag. Sungnir voru kvöldsálmar og guðspjallið lesið úr Lúkasarguðspjalli 2, 22-35. Textar skv. Alternative Common Book of Prayer bls. 1061: Mal. 3, 1-5 , 1. Pét. 2, 1-10, Lúk. 2, 22-35
Flokkur: Uncategorized
Tal við Guð um ástina
Góði Guð, ástin er undursamleg gjöf þín. Þegar illa liggur á mér, skil ég ekki að nokkur skuli elska mig. Þegar ég er einmana, geri ég allt til þess að verða sem elskulegastur. Æ, hvað ég þrái að vera elskaður! Hvort er auðveldara, að vera elskaður eða að elska?