Upprisumynd – fjögur trúarleg málverk

Fjórða málverkið í seríunni fjögur trúarleg málverk er túlkun á verki Mauris Denis af upprisunni: Noli me tangere. Myndirnar má enn skoða í Gallerí forkirkju í Glerárkirkju.

Frummyndin var upphaflega hugsuð sem glerlistaverk sem einkennir myndina. Denis málaði margar trúarlegar myndir, litríkar og sumar táknrænar, aðrar raunsærri. Þessi mynd er útlegging á Jóh. 20, 11-18 þegar Jesú mætti Maríu Magdalenu úti fyrir gröfinni en hún hélt fyrst að hann væri grasgarðsvörðurinn. Hann sagði við hana þessi leyndardóms-fullu orð: “Snertu mig ekki” — „Noli me tangere“

Mín túlkun er með smávægilegum breytingum til að staðfæra þemað til okkar tíma. Upprisan er út fyrir raunveruleikann og Kristur er Drottinn veraldar. Stjörnur í bakgrunni og jörðin milli Maríu og Jesú  eiga að sýna það. Við tilbiðjum Drottin með Maríu, biðjum fyrir bláa hnettinum í dag að lífið megi sigra eyðingar-öflin. Upprisan gefur okkur von um það, að Guð komi á móts við okkur í framtíðinni. 

Nunnurnar í forgrunni eru  Karmelsystur í kaþólsku kirkjunni á Akureyri. Boðskapur kristinnar trúar á sér hljómgrunn meðal fólksins hér. Þær standa fyrir vitnisburð kirkjunnar, sú sem bendir á Krist, boðun, sú sem heldur utan um systur sína, samfélagið, sú sem réttir upp hendur sínar í bæn til Drottins, þjónusta, sú sem umvefur samfélagið. 

Það voru konur sem urði fyrst vitni að upprisunni og fóru og vöktu eilífa von með lærisveinunum og fólkinu: Kristur er upprisinn.

Árdegis, röðull reis úr nótt,
í roða fór María að gröf Jesú hljótt,
felldi hún tár á föla jörð
sem fann ekkert til, en var náköld og hörð.

Guð hennar var í gröf og svaf,
í guðdýrkun sinni gaf þakklæti af
smyrsl, sem hún bar við barminn sinn,
en brynjaður vopnum var hermaðurinn.

Gröfin var tóm og gatan auð,
og Guð hennar huldi sig, þar stóð hún snauð.
Felldi hún tár við fætur manns
sem fór þarna hjá, framhjá gröf Lausnarans.

María spurði manninn þann
um Meistara sinn, hvar hann lagt hefði hann.
„María, ég er upprisinn,
ég er alltaf hjá þér, ég, Drottinn Guð þinn.“

Guðm. G.

Guðmundur Guðmundsson's avatar

Eftir Guðmundur Guðmundsson

Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

Færðu inn athugasemd