Þrír barnasálmar – Jesús sat í bátnum

Þessi sálmur er þýðing á sálmi einnig eftir Frostenson við lag eftir norska tónskáldið og organistann Trond Kverno. Ég naut þess að syngja passíu hans undir hans stjórn með litlum sönghóp sem starfaði í Lilli-Borg kirkju í Osló á föstudaginn langa 1988. Hér er annar blær, barnslegt stef sett við dæmisöguna um sáðmanninn. Málverkið er eftir van Gogh sem ég fékk tækifæri til að skoða í Amsterdam í haust.

Jesús sat í bátnum
og boðaði Guðs orð.
Fólkið var við vatnið
og vorsól skein um storð.

Börnin smíða báta
úr berki eða skel.
Jesús boðar orðið
og allir hlusta vel:

”Sáðmaðurinn fræjum
þá sáði yfir fold.
Sumt bar mikinn ávöxt,
það óx í góðri mold.

Annað féll á veginn
og varð að fugla mat.
Annað féll í grjóturð,
þar ekkert vaxið gat.

Sumt féll meðal þyrna
og það er horfið nú.
Hlustaðu á orðið,
svo ávöxt berir þú.“

Þýð. Guðm. G.

Guðmundur Guðmundsson's avatar

Eftir Guðmundur Guðmundsson

Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

Færðu inn athugasemd