Önnur þýðing mín á bænum og íhugunum Keating er um uppsprettu kyrrðarbænarinnar. Á síðustu áratugum hefur margt kristið fólk uppgötvað á ný kenninguna um þríeinan Guð og ekki lengur lagt ofuráherslu á kenningar heldur tengsl, kærleikssamfélag guðdómsins, föður og sonar og heilags anda, sem við megum tengjast í bæn og íhugun. Þessi íhugun er dæmi um það.
Hvaðan sprettur kyrrðarbænin? Uppspretta kyrrðarbænarinnar er þríeinn Guð sem er innra með okkur. Hún sprettur upp af lífi Guðs innra með okkur… Með skírninni kemur öll nærvera heilagrar þrenningar sem er handan sköpunar: Faðir og sonur og heilagur andi. Við erum þátttakendur sem manneskjur í lífi Guðs einfaldlega vegna þess að við erum lifandi, og enn frekar fyrir náð… Þessi straumur guðlegrar ástar er sífellt að endurnýjast í lífi þrenningarinnar og er glædd innra með okkur fyrir náð. Það vitum við vegna þess að við þráum Guð. Þráin, þrátt fyrir að mæta andstöðu í erli daglegs lífs, þráin eftir Guði birtist í viðleitni okkar að þroska bænalíf og líferni sem er mótað af bæn.
The Theological Basis of Centering Prayer, Intimacy with God.