Bænir Keating 1

Angistin í garðinum eftir El Greco
Angistin í garðinum eftir El Greco

Undanfarið ár hef ég stundað tvenns konar setur. Annars vegar kyrrðarbæn þar sem játast er nærveru Guðs, og hins vegar eins og listamenn tala um að setjast við list sína. Að játast Guði er að játast LÍFINU og að stunda “sjónlist” er að horfa og sjá. Bænir Thomas Keating heitins, talsmaður kyrrðarbæna hreyfingarinnar, hafa verið mínar upphafs og lokabænir eða íhugun við kyrrðarbænina. Svo ég hef snúið þeim nokkrum á íslensku til að finna nærveru Guðs betur á móðurmáli mínu. Datt í hug að birta þýðingar mínar ef það gæti auðgað bænalíf einhvers. Ég vil gjarnan ræða um reynslu mína og annarra af þeim og fá ábendingar um það sem mætti orða betur.

Við játumst nærveru Guðs, látum Guð um að ákveða hvað hann vill að við gerum. Guð virðist vilja finna út úr því hvernig það sé að lifa mannlegu lífi með okkur eða í okkur. Hvert og eitt okkar er sú einstaka persóna sem getur veitt Guði þá gleði. Þannig er virði okkar algjörlega óviðjafnanlegt. Okkur er boðið að gefa Guði tækifæri að upplifa Guð í mannlegu lífi okkar, í erfiðleikum okkar, veikleika okkar, í fíkn okkar, í synd okkar. Jesús valdi að vera hlulti af lífsreynslu hvers og eins okkar, sama hver hún er, og lyfta öllum upp í guðdómlega einingu.

Thomas Keating, Fruits and Gifts of the Spirit

Guðmundur Guðmundsson's avatar

Eftir Guðmundur Guðmundsson

Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

Færðu inn athugasemd