Hvað getum við lært af dýrunum okkar? Dvöl í Hveragerði vakti athygli mína á því sem ég hafði gleymt en dýrin okkar kunna. Þau kunna að slaka á eins og Bingó, elsku hundurinn, sem kvaddi okkur síðast sumar. Þau kunna að horfa og sjá eins og Skotta, einn af köttunum okkar, drottningin á heimilinu. Þau kunna að vera kyrr og algjörlega hreyfingarlaus í íhugun eins og Bína, kanína okkar, sem var bjargað undan frosthörku í Kjarnaskógi af vísindamönnum.

Blýantsteikning, 20×12 cm. Slökun – Bingó

Blýantsteikning, 20×12 cm. Horfa og sjá – Skotta

Blýantsteikning, 20×12 cm. Kyrrð – Bína