Þrír barnasálmar – Bænasöngur

Frumsaminn sálmur minn Bænasöngur barnanna finnst mér tilbúinn til birtingar. Barnsleg trú mín endurspeglast í sálminum. Dýrðarsöngur um heilaga þrennningu sem tengist börnum Guðs í bæn þeirra fyrir orðið. Fjögur stef: Bæn með signing, lestur Orðsins, íhugun með tileinkun og breyta eftir því sér til blessunar.

Bænasöngur barnanna

Með sínu lagi

Ó, Drottinn Guð, hvern dag ég bið
um dýrð Guðs föður, náð og frið,

að lífsins andi leiði mig
er les ég bókina um þig.

Ég legg þín orð á minni mitt.
Ég má nú kallast barnið þitt.

Það skrifað er í orði því,
sem alla daga les ég í.

Þá hugsa ég um orðin þín,
sem opna mér til himins sýn.

Ég læri smátt og smátt um þig,
sem segir að þú elskar mig.

Svo held ég út í heiminn þinn
og hugsa enn um lærdóminn.

Ég breyti eins og bauðstu mér
til blessunar og dýrðar þér.

Guðm. G.

Guðmundur Guðmundsson's avatar

Eftir Guðmundur Guðmundsson

Héraðsprestur í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi

Færðu inn athugasemd