Þá er komið að því að við hjónin göngum Jakobsveginn frá Porto til Santiago. Undirbúningur hefur staðið yfir með gönguferðum og andlegum iðkununum. Góður vinur bjó mig út með Leið pílagrímsins. Ég á nú ekki von að ég komist svo langt í andlegheitum eins og sá nafnlausi höfundur. Mikið verður þó gott að hafa bara… Halda áfram að lesa Söngur pílagrímsins
Month: mars 2026
Þrír barnasálmar – Jesús sat í bátnum
Þessi sálmur er þýðing á sálmi einnig eftir Frostenson við lag eftir norska tónskáldið og organistann Trond Kverno. Ég naut þess að syngja passíu hans undir hans stjórn með litlum sönghóp sem starfaði í Lilli-Borg kirkju í Osló á föstudaginn langa 1988. Hér er annar blær, barnslegt stef sett við dæmisöguna um sáðmanninn. Málverkið er… Halda áfram að lesa Þrír barnasálmar – Jesús sat í bátnum
Sáttargjörð, réttlæti og friður – hugvekja
Hugvekja flutt á Lindinni 17. mars Hér má hlusta á hugvekjuna: Ég les úr Fjallræðunni orð sem vel flestir kannast við. Í ræðunni miðri er Faðir vorið þess vegna hef ég haldið því fram að þessi ræða Jesú sé um tilbeiðslu og bæn. En það er ein beiðni sem ég vil sérstaklega staldra við í… Halda áfram að lesa Sáttargjörð, réttlæti og friður – hugvekja
Þrír barnasálmar – Þúsund stjörnur
Þessi barnasálmur er þýðing / túlkun á sálmi Frostenson við lag T. Sörensson. Mér skilst að hann sé notaður nokkuð við skírnir enda reyni ég að ná því fram í þýðingunni. Dásamleg sköpunartrú, bjartsýni von, sem okkur veitir ekki af. Þúsund stjörnur glampa, Guð gaf öllum nafn. Öllu hönd Guðs stýrir, stórt er himna safn.… Halda áfram að lesa Þrír barnasálmar – Þúsund stjörnur
Þrír barnasálmar – Bænasöngur
Frumsaminn sálmur minn Bænasöngur barnanna finnst mér tilbúinn til birtingar. Barnsleg trú mín endurspeglast í sálminum. Dýrðarsöngur um heilaga þrennningu sem tengist börnum Guðs í bæn þeirra fyrir orðið. Fjögur stef: Bæn með signing, lestur Orðsins, íhugun með tileinkun og breyta eftir því sér til blessunar. Bænasöngur barnanna Með sínu lagi Ó, Drottinn Guð, hvern… Halda áfram að lesa Þrír barnasálmar – Bænasöngur